Um hádegisleytið í gær sást til rottuunga og kattar á göngu í Norðurmýrinni í Reykjavík. „Ég bý í 101 rétt við Norðurmýrina þar sem þetta ég sá. Þetta er nú bara rottuungi samt og óvenjulegt um hádegi um dag,“ sagði Þórir Grétar sem jafnframt tók myndskeiðið. Vel virðist fara á hjá þessu félögum þar sem þeir hlaupa fyrir horn.
Aðspurður svaraði Þórir Grétar, íbúi á svæðinu, að hann hafi ekki orðið var við rottugang svo mánuðum skipti.
„Svo fékk kisi leið á henni,“ bætir Þórir Grétar við.
Myndskeiðið má sjá hér að neðan:
Myndskeiðið birtist á grúppunni Íbúar Miðborgar á Facebook.