Alþjóðlega fjárfestingafélagið Partners Group hefur samið um kaup á gagnaverinu atNorth. Partners Group er skráð félag og eitt það stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Kaupin falla vel að stefnu atNorth um aukin umsvif á Norðurlöndum á komandi árum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Starfsmenn atNorth eru alls um 40 talsins, en að auki koma um 40 verktakar beint að daglegri þjónustu í kringum rekstur fyrirtækisins og enn fleiri óbeint.

Viðskiptin skapa mikil vaxtartækifæri fyrir atNorth, sem hefur einsett sér að vera leiðandi fyrirtæki á sínu sviði. Stjórnendateymi atNorth verður áfram við stjórnvölinn og mun stýra sókn félagsins inn á nýja markaði, segir í tilkynningunni.

Talið er að fyrirtæki sem reka ofurtölvuumhverfi séu að horfa sífellt meira til Norðurlandanna sem heppilegrar staðsetningar fyrir gagnaver og ofurtölvubúnað, þar sem umhverfisvæn orka sé í boði og kjöraðstæður til góðrar orkunýtni sem sé eitt af megineinkennum þeirrar þjónustu sem atNorth veitir viðskiptavinum sínum sem staðsettir eru víðs vegar í heiminum.

- Auglýsing -

„Við höfum þegar náð góðri fótfestu með uppbyggingu sjálfbærra og hagkvæmra gagna- og reiknivera á Íslandi og Svíþjóð. Nú er hins vegar tímabært að taka stærri skref og sækja hraðar fram á ört vaxandi markaði. Við hlökkum til þessa nýja kafla í vegferð atNorth með Partners Group, sem hefur mikla þekkingu á stafrænum innviðum, verðmæta rekstrarreynslu og mikla fjárfestingargetu,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth í viðtali við fréttablaðið.