Páll Steingrímsson skipstjóri varð fyrir barðinu á ósmekklegum ummælum Hallgríms Helgasonar rithöfunds í Facebook-hópnum; Hrísey – myndir og fréttir. Í færslu innan hópsins óskar Hallgrímur Helgason eftir aðstoð. Hann útskýrir að bifreið hans hafi bilað og hann sé því fastur á Akureyri og vanti far til Hríseyjar:
„Hæ er strandaglópur á ak, bíllinn bilaði, er einhver á leið út í eyju?“
Undir færsluna ritar annar meðlimur sem vill hjálpa Hallgrími og spyr hvort Páll Steingrímsson geti geti ekki skutlast með hann.
Við ábendingu ræðumanns svarar Hallgrímur eftirfarandi:
„Ansans, fékk far með öðrum, annars hefði ég getað byrlað honum aftur“
Er Hallgrímur með ummælum sínum að vitna til þess þegar fréttir fóru af því að Páll lá lífshættulega veikur á Landspítalanum og sími hans tekinn. Lögreglan rannsakaði mögulega byrlun gagnvart honum.
Ummælum Hallgríms var svarað svohljóðandi:
„Hallgrímur Helgason ekki hjelt ég að þú værir alveg svona illa innrættur, en jú nú sannast að þú ert miklu verri maður en ég hjelt.“
Sjá nánar:
Páll Steingrímsson opnar sig um símamálið: „Þá segir hún „ég vil bara fá að deyja“,“