- Auglýsing -
Vallarstjóri Þróttar fær að koma aftur til landsins.
Isaac Kwateng, vallarstjóri Þróttar, hefur fengið samþykkt atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi en honum var vísað úr landi í október. Hann hafði þá búið á Íslandi síðan 2017 og sótti þá um alþjóðlega vernd.
Framkvæmdastjóri Þróttar staðfesti þetta í samtali við mbl.is. Ekki er búið að bóka flug fyrir Isaac en hann bíður ennþá eftir vegabréfsáritun. „Hann flýgur heim þegar hún er komin,“ sagði María um málið.