Laugardagur 18. maí, 2024
8.8 C
Reykjavik

Krefjast þess að hvalveiðum „ljúki tafarlaust“ eftir skýrslu MAST:„Tók dauðastríðið tvo klukkutíma“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dýraverndarsamband Íslands krefst þess að hvalveiðum ljúki tafarlaust á Íslandi eftir svarta skýrslu Matvælastofnunar um veiðarnar.

Í ljósi svartrar skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar, þar sem niðurstaðan er sú að veiðar á stórhvelum samræmist ekki markmiðum laga um velferð dýra, hefur
Dýraverndarsamband Íslands birt harðorða ályktun.

Ályktunina má lesa hér í heild sinni:

Ályktun stjórnar Dýraverndarsambands Íslands

Matvælastofnun staðfestir að hvalveiðar eru dýraníð

Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) vekur athygli á þeirri skýru niðurstöðu Matvælastofnunar (MAST), á grundvelli gagna sem söfnuðust við eftirlit með hvalveiðum á síðasta ári, að óásættanlega hátt hlutfall þeirra veiddu hvala, sem eftirlitið náði til, þjáðust.

Í ágúst á síðasta ári undirritaði matvælaráðherra reglugerð um aukið eftirlit með veiðum á langreyðum við Ísland sem fól meðal annars í sér að veiðarnar skyldu kvikmyndaðar. Tilgangur þess var að stuðla að bættri velferð dýra en DÍS hefur árum saman haldið því fram að hvalveiðar séu ómannúðlegar og eigi ekki rétt á sér.

- Auglýsing -

Nú er komin út svört skýrsla MAST um hvalveiðar Hvals hf á síðasta ári og kemur þá í ljós að 41% dýranna dó ekki samstundis. Miðgildi þess tíma sem dauðastríð þeirra dýra tók var heilar ellefu og hálf mínúta. Í eitt skiptið tók dauðastríðið tvo klukkutíma og í öðru tilviki  stóð eltingarleikur hvalbáts yfir í fimm klukkustundir eftir að sprengiskutli var skotið í bak dýrsins. Ekki tókst að ná dýrinu og slapp það því að lokum helsært. 73% þeirra alls 148 hvala sem veiddir voru í fyrra voru kvenkyns þar af 11 kálfafullar kýr og ein mjólkandi.

Matvælastofnun segir veiðarnar ekki uppfylla markmið laga um dýravelferð og vísar því til fagráðs um velferð dýra að meta hvort veiðarnar geti mögulega uppfyllt þau markmið. Niðurstaða eftirlitsins á síðasta ári leiðir í raun í ljós að svo er ekki en mikilvægt engu að síður að undirbyggja vel lagalega ákvörðun um að binda í eitt skipti fyrir öll enda á það dýraníð sem hvalveiðarnar sannanlega eru. Ábyrgðin á þessari stundu liggur fyrst og fremst hjá Hval hf og eiganda þess fyrirtækis að bregðast við áfellisdómi MAST og hætta við veiðar í sumar þó svo að eitt ár sé eftir af veiðileyfi fyrirtækisins.

DÍS fer hér með fram á að veiðunum ljúki tafarlaust en að stjórnvöld beiti Hval hf að öðrum kosti ströngum viðurlögum ef svo illa fer að veiðar haldi áfram í sumar og að annar hvalur deyi ekki samstundis, sem næsta víst er að muni þá gerast í einni af fyrstu veiðiferðunum.
Stjórn DÍS leggur áherslu á þá meginkröfu að lok hvalveiða verði varanleg en ekki tímabundin þannig að aldrei framar verði kvóti útgefinn eða leyfi veitt á Íslandi fyrir hvalveiðum.

- Auglýsing -

Stjórn Dýraverndarsambands Íslands

Ekki náðist í Kristján Loftsson, eiganda Hvals ehf við gerð fréttarinnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -