Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Lögreglan leitar að ökumanni sem keyrði á ungan dreng – Skorar á hann að gefa sig fram

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á ungan pilt á rafmagnshlaupahjóli á gangbraut á Neshaga í Reykjavík, hjá Melaskóla, síðastliðinn föstudagsmorgun, 24. mars, rétt fyrir níu, eða um kl. 8.50. Fyrrnefndur ökumaður nam staðar á vettvangi og átti orðaskipti við piltinn, en ók síðan á brott. Lögreglu var tilkynnt um slysið í dag, en við skoðun á slysadeild höfðu komið í ljós áverkar á piltinum, sem er á grunnskólaaldri.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir:

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -