Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Óskar missti lærimeistara sinn er Víkartindur strandaði: „Við erum að fara að sökkva“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er engin annar en Óskar Grétuson, einnig þekktur sem Boris. 

Óskar vann titilinn Sterkasti maður Íslands fjögur ár í röð, frá 2005 til 2008 og keppti einnig í keppninni Sterkasti maður heims með góðum árangri. Óskar ólst upp á Grundarfirði áður en hann flutti í Fellahverfið í Raykjavík. Þar upplifði hann sig að talsvert á skjön við aðra og átti erfitt með að eignast vini og upplifði mikið einelti og þá einna helst af því hann þótti þykkur í vextinum.


Strandið

Þegar Óskar var 17 ára hóf hann störf hjá Landhelgisgæslunni og upplifði mikið áfall við björgun flutningarskipsins Vikartinds er gæsluskipið fékk á sig tvöfalt brot og lagðist bókstaflega á hliðina með þeim afleiðingum að lærimeistari hans, Elli lést eftir alvarlegt höfuðhögg. „Við höfum oft lent í brotsjó en þessi stormur var mjög sérstakur að því leitinu til að það komu tvö brot með nánast því engu millibili. Þannig að það er kallað „brot!“ og þú veist, skellur á skipinu og það hallar alveg gríðarlegar og á meðan skipið er að rétta sig af aftur, þá kemur annað brot. Og við lögðumst 80 gráður á hliðina. Og ég hélt í eitthvað loftop einhvers staðar og ég dinglaði bara í lausu lofti með fæturnar og ég hugsaði bara „Við erum að fara að sökkva“. En skipstjórinn hékk á, sko, þú setur aðra vélina í áfram og hina í aftur á bak, til að rétta það við, og hann hékk bara á þessu í 80 gráðum. Og hann náði að bjarga skipinu og við sukkum ekki. En Elli karlinn hefur ekki náð að grípa í.“

Slysið

- Auglýsing -

Óskar kynntist kraftlyftingum og sýndi þar mikla hæfileika og metnað. Hann fór fljótt upp metorðastigann en hann lærði af mörgum af bestu kraftlyftingarmönnum Íslands. Í sinni síðustu lyftu á hans síðasta móti sem hann tók þátt í, stórslasaðist hann og að eigin sögn bókstaflega murrkaði á sér taugakerfið með þeim afleiðingum að hann keppti aldrei aftur. Hann fór inn í tímabil þar sem hann glímdi við allskonar verki og undarleg einkenni sem læknar áttu erfitt með að kortleggja en einn ráðlagði honum að skella sér bara í nudd og það átti eftir að hafa miklar aðfleiðingar í för með sér.

Mynd af kýlinu sem myndaðist á hálsinum á honum. Óskar Fékk mörg svona kýli út um allan líkama eftir slysið.

Nuddið

- Auglýsing -

Hann byrjaði að nudda sjálfan sig og náði undraverðum árangri. Hann fór að upplifa að með því að grafa sig inn í taugakláða og verki tókst honum að flytja til áfallaeiningar sem voru að valda stíflum í taugakerfinu og með því náði hann smátt og smátt heila þennan skaða sem læknar höfðu sagt honum, í algjörum vanmætti og úrræðaleysi, að væru ólæknanlegir og þess vegna króniskir. Smátt og smátt hefur Óskar náð heilbrigði og á 14 árum hefur hann snúið lífu sínu við og starfar sem einn af öflugustu meðferðaraðilum á landinu.

Þáttastjórnandinn Gunnar fór sjálfur til Óskars fyrir tveimur vikum síðan og hann sagði að eftir að hafa farið í ótal nuddtíma í gegnum tíðina, hafi hann aldrei upplifað það sem hann upplifði í þessum 90 mínútna nuddtíma sem hann fékk frá Óskari. Hann talaði um að hafa gefið sig alfarið á vald Óskars sem náði bókstaflega að kremja hann eins og sardínu og náði að losa um spennu í líkamanum sem Gunnar vissi ekki einu sinna að hann hýsti innra með sér. Það sem Gunnari fannst einnig áhugaverðast var að traustið var algjört og má segja að hann hafi gefið Óskari leyfi til að fara eins djúpt og líkamlega og hægt var í þeim tilgangi að losa stíflur og opna fyrir orkuflæðið sem honum fannst hann í raun verðskulda. 

Óskar er talsvert fluttur á milli landa af viðskiptavinum og hefur hann verið flogið töluvert til Bandaríkjanna, Englands, Frakklands, Þýskalands og meira að segja yfir hálfan hnöttinn til Ástralíu því þeir erlendu viðskiptavinir sem Óskar hefur meðhöndlað segjast margir aldrei hafa upplifað neitt þessu líkt hvað varðar snertingu og innsæisríka nálgun Óskars. Er hann sjálflærður nuddari og segir Óskar að hann hafi það á tilfinningunni að hann njóti handleiðslu sem hann getur ekki útskýrt. Hann segist hálfpartinn taka sjálfan sig úr jöfnunni þegar að meðferðin hefst og þannig nái hann besta flæðinu og lestri viðfangsefnisins.

Óskar sérhæfir sig í að vinna með það sem kallast stífur, sem sitja í líkamanum og hafa áhrif á bæði vöðva og liði sem og taugakerfið sem í raun stjórnar öllum líkamanum. Magnaður maður þarna á ferð sem greinilega býr yfir vissri náðargáfu sem snýr að heilun mannslíkamanns. 

Þáttinn má sjá í heild sinni hér á spilaranum fyrir neðan en einnig má nálgast þætti Alkastins og Þvottahússins á öllum helstu streymisveitum eins og Spotify.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -