Eitt stærsta teiti ársins var haldið er Birgitta Líf Björnsdóttir fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu með pompi og prakt; fyrir valinu varð skemmtistaðurinn B5, sem afmælisstúlkan á einmitt.
Bleik lýsing í stíl við kjól Birgittu var meginþemað í teitinu góða og stóra.
Alls konar fólk mætti ásvæðið; meðlimir LXS-gengisins, Æðis-drengirnir og sjálf drottning ríkisstjórnarinnar, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem á daginn sinnir starfi vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Íslands.
Þvílíkt gengi á einum stað.
Skemmtiatriðin voru af dýrari gerðinni; sjálfur konungur raularanna, Jón Jónsson, framkallaði galdur sinn af kostgæfni og virðingu; Herra Hnetusmjör tróð upp og sama má segja um Gísla Pálma.
Ekkert annað en rjómi okkar Íslendinga var þarna mættur – sómi, sverð og skjöldur.
Til lukku Ísland.