Laugardagur 27. apríl, 2024
8.8 C
Reykjavik

Tilkynningum um heimilisofbeldi fækkar – Fíkniefnabrot færri í ár en síðustu þrjú ár

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það sem af er ári hafa 11 prósent færri tilkynningar borist lögreglu vegna heimilisofbeldi, en undanfarin þrjú ár. Fíkniefnabrotum hefur einnig fækkað talsvert.

Samkvæmt mánaðarskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir september, bárust 710 tilkynningar um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en nær helmingur brotanna voru framin á svæði Lögreglustöðvar 1. Nær það yfir Miðborgina, Vesturbæ, Seltjarnarnes, Háaleiti, Hlíðar og Laugardal.

Fram kemur í skýrslunni að tilkynningum um þjófnað hafi fækkað talsvert á milli mánaða, sem og tilkynningum um innbrot.

Þá bárust 106 tilkynningar um ofbeldisbrot í september en tilkynningar um heimilisofbeldi fækkaði á milli mánaðar, fóru úr 57 tilkynningum í ágúst, í 45 tilkynningar í september. Það sem af er ári hafa borist um 11 prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Fram kemur einnig í skýrslunni að þrjú tilvik hafi verið skráð þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi.

Alls bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 33 tilkynningar um kynferðisbrot í september, um 14 þeirra tilkynninga voru vegna brota sem áttu sér stað í september.

Samkvæmt skýrslunni fækkaði skráðum fíkniefnabrotum á milli mánaða ef fjögur stórfelld fíkniefnabrot voru skráð í september. Þó hafi heilt yfir verið skráð um 28 prósent færri fíkniefnabrot á höfuðborgarsvæðinu, en skráð voru að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan.

- Auglýsing -

Fjölgun var í tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, milli mánaða, sem og tilkynningum þar sem ökumaðuri var grunaður um ölvu við akstur.

Sjö prósent færri umferðalagabrot á höfuðborgarsvæðinu hafa verið skráð það sem af er ári, en hafa verið skráð að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár. Alls voru skráð 629 umferðalagabrot á höfuðborgarsvæðinu í september.

Skýrsluna í heild er hægt að nálgast hér: https://issuu.com/logreglan/docs/lykiltolur_2023_september

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -