Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Ungmenna- og unglingaóregla víðsvegar um borgina – Reykti kannabis í strætó

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Töluverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu seinnipart gærdags og í nótt. Þó nokkrar þeirra beindust að ólögráða einstaklingum. Tilkynning barst um yfirstandandi hópslagsmál í neðra Breiðholti. Þegar lögreglu bar að voru þar 18 til 20 einstaklingar sem öll flokkast sem ungmenni.

Frá miðborginni barst tilkynning um ungmenni undir lögaldri sem voru að versla áfengi á skemmtistað.

Í Grafarvogi barst tilkynning um ungmenni í annarlegu ástandi.

Lögreglan mátti aðstoða starfsmann Strætó þegar farþegi hafði kveikt sér í kannabis í vagninum. Ekki er vitað um afleiðingar reykingamannsins en vel er vitað og hefur verið í fjölda ára að reykingar í almenningssamgöngum eru ekki leyfilegar. Þess má geta að í 2. tölublaði Einingar frá 1. febrúar 1953 var ritað: „Það ætti að vera sjálfsögð kurteisi að biðja um leyfi til að reykja í viðurvist ókunnugra og í annarra manna híbýlum. Í bíl er sjálfsagt að biðja um leyfi annarra farþega, en í almenningsvögnum, innan bæjar og utan, ættu reykingar alls ekki að vera leyfðar.“

Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna aðila sem gekk á hurðir á hóteli í miðborginni. Aðilinn var rólegur þegar lögreglu bar að og var hann fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hann reyndist eftirlýstur í kerfum lögreglu.

Allmargir ökuþórar voru stöðvaðir af lögreglu grunaðir um akstur undir áhrifum.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -