Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Vilhjálmur lætur að því liggja að hryðjuverkamálið tengist frumvarpi Jóns: „Okkar eigið USA“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður ritar afar áhugaverða grein sem ber yfirskriftina:

Jón Spæjó:

„Það er haust. Það styttist í að fjárlög ríkisins komi til umræðu á Alþingi. Þegar þeir stíga á stokk íbyggnu mennirnir með alvarlega lúkkið í svörtu búningunum og lýsa því yfir að þeim hafi naumlega tekist að koma í veg fyrir hryðjuverk. Landsmenn og konur fá hland fyrir hjartað og margfalt fleiri trúa því í dag en í gær að mannskætt hryðjuverk verði framið á Íslandi.“

Bætir við að „dómsmálaráðherra er sleginn í yfir fréttum lögreglunnar. Hann hrósar lögreglunni í hástert fyrir að hafa afstýrt voðaatburði. Hann segir að skelfilegar aðstæður séu að myndast á Íslandi og almenningur þurfi að horfast í augu við veruleikann.

Á Lagadeginum segir saksóknari að huga þurfi að því að koma upp málmleitarhliðum í dómhúsum. Okkar eigið USA.“

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hér á málverki eftir Þránd Þórarinsson myndlistarmann.

Vilhjálmur nefnir að „eftirlitsiðnaðurinn á Íslandi faðmast tárvotur yfir því að vera enn á lífi og allir klappa öllum á bakið. Dómsmálaráðherra sprettur fram eins og stálfjöður í fjölmiðlum vopnaður nýju lagafrumvarpi um forvirkar rannsóknarheimildir. Hann segir að frumvarpið sé tilbúið í dómsmálaráðuneytinu. Það eigi bara enn eftir að líta dagsins ljós. Hvernig sem það kemur heim og saman.“

- Auglýsing -

Og Vilhjálmur heldur áfram:

„Hugsanlega þolir frumvarpið bara ekki dagsljósið. Dómsmálaráðherra segir að lagafrumvarpið sé nákvæmlega það sem kallað hafi verið eftir. Tímasetningin sé tilviljun. Einmitt. Við erum öll fífl. Lagafrumvarp samið af lögreglu fyrir lögreglu til þess að njósna um borgarana eftir geðþótta lögreglu án þess að grunur sé um afbrot og íþyngjandi eftirlits dómstóla. Nafnið er reyndar snilld. Frumvarp um heimildir til afbrotavarna. Hver kaupir það ekki? Afbrotavörn. Nafnið breytir samt engu. Þetta er bara nýtt orð yfir sama skítinn. Réttinn til að njósna. 1984 eftir Orwell.“

- Auglýsing -

Bætir við að „þessi krafa að löggjafinn veiti lögreglunni heimild til þess að njósna um borgaranna án aðkomu dómstóla og gruns um að afbrot hafi verið framið er ekki ný af nálinni. Hún hefur margoft komið fram áður og yfirleitt sem svar við kalli lögreglunnar „Úlfur, Úlfur”.

Í dag eru það hryðjuverk. Á morgun stórhættulegir blaðamenn sem ógna þjóðaröryggi með fréttaflutningi um landið og miðin og fyrir 10 árum voru það Hells Angels.“

Hann segir einnig að „sú ætlan lögreglu leiddi til að forsprakki samtakanna var látinn rotna í gæsluvarðhaldi við ómannúðlegar aðstæður í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg í tæpa sex mánuði. Hann var síðan ákærður fyrir allt og ekkert. Stuttu síður var hann sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins í Hæstarétti. Mörgum árum síðar voru honum dæmdar 7,5 milljónir í skaðabætur vegna aðfarar íslenska ríkisins að mannréttindum hans. Mér er ekki kunnugt um að nokkur hafi beðið hann afsökunar á því að íslenska ríkið lagði líf hans í rúst. Tilgangurinn helgar meðalið.“

Að lokum bendir Vilhjálmur á að í dag hafi lögreglan „víðtækar valdheimildir til þess að beita borgaranna þvingunarráðstöfunum í þágu rannsóknar á sakamálum s.s. símahlerun, herbergjahlustun, skoðun á rafrænum gögnum, staðsetningu á grundvelli símaganga, beitingu eftirfararbúnaðar o.s.frv. Í dag eru þessar aðgerðir lögreglu háðar samþykki og sæta eftirliti dómstóla eins og eðlilegt er í réttarríki. Því má alls ekki breyta.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -