Laugardagur 4. maí, 2024
2.1 C
Reykjavik

Yfirlýsing frá Tómasi Guðbjartssyni lækni: „Hefur valdið mér og fjölskyldu minni ómældum sársauka“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tómas Guðbjartsson biðst afsökunar á þeim atriðum plastbarkamálsins sem snýr að honum og segir málið hafa haft afar slæm áhrif á fjölskyldu sína.

Í yfirlýsingu frá Tómasi Guðbjartssyni lækni fer hann yfir nokkur atriði tengdu plastbarkamálinu svokallaða og fréttaflutningi af því undanfarið. Segir hann umræðuna hafa verið á köflum óvægna og að stundum hafi verið farið „frjálslega með staðreyndir“ og því vilji hann árétta nokkra hluti.

Tómas útskýrir að hann hafi ekki verið sendur í leyfi frá störfum á Landspítala, heldur hafi hann fylgt ráðum kollega sinna og farið í sjúkraleyfi. „Það geri ég bæði heilsu minnar vegna og með hagsmuni sjúklinga minna í huga,“ segir Tómast og segir að í starfi hjarta- og lungnaskurðlæknis, geti mistök auðveldlega ógnað lífi sjúklinganna og segir hann að einbeitinguna hafi skort hjá honum í þeim „stormi“ sem „geisað hafi undanfarið.“

Einnig segir Tómas að hann hafi tíu sinnum borið vitni í málinu og haft frumkvæði á að afhenda öll gögn sem hann hafði um málið, jafnvel þó það kæmi niður á honum sjálfum. Þá segir hann að alla tíð hafi hann verið afar opinn við fjölmiðla og að það hafi „orkað tvímælis“ hjá sumum kollega hans og að hann muni taka þá gagnrýni til greina.

Að lokum biðst Tómas afsökunar á þeim þáttum málsins sem snéru að hans starfi sem læknir og fræðimaður og að hafa látið Paolo Macchiarini plata sig þetta lengi. Segir hann að málið hafi elt sig í 12 ár og haft gríðarleg áhrif á fjölskyldu sína. „Þetta mál hefur nú fylgt mér í rúmlega 12 ár og valdið mér og fjölskyldu minni ómældum sársauka, sársauka sem mun fylgja mér ævina á enda. Meiri er þó vitaskuld sársauki og missir ekkjunnar og barnanna tveggja, sem mér verður ítrekað hugsað til.“

Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

- Auglýsing -

Undanfarið hefur aðkoma mín að fyrstu plastbarkaaðgerðinni á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í júní 2011 verið á ný í fréttum. Umræðan hefur á köflum verið óvægin og stundum farið frjálslega með staðreyndir. Ég vil því árétta eftirfarandi:

  • Ég hef ekki verið sendur í leyfi frá störfum á Landspítala, heldur hef ég fylgt eindregnum ráðum lækna og farið í sjúkraleyfi. Það geri ég bæði heilsu minnar vegna og með hagsmuni sjúklinga minna í huga. Í starfi hjarta- og lungnaskurðlæknis geta mistök í aðgerð auðveldlega ógnað lífi þeirra, en í þeim stormi sem hefur geisað undanfarið hef ég ekki haft þá einbeitingu sem starfið krefst. Stjórnendur á Landspítala hafa stutt þessa ákvörðun mína.
  • Á sl. 10 árum hef ég verið kallaður til sem vitni hjá 10 innlendum og erlendum rannsóknaraðilum plastbarkamálsins, m.a. rannsóknarnefndum Karolinsku stofnunarinnar, Karolinska sjúkrahússins, sænsku lögreglunnar og síðast en ekki síst  óháðri rannsóknarnefnd Landspítala og Háskóla Íslands sem Páll Hreinsson stýrði og skilaði ítarlegri skýrslu um 2017, sem má sjá hér: https://www.hi.is/frettir/skyrsla_nefndar_um_plastbarkamalid_kynnt. Nafn mitt kemur oft fyrir í öllum þessum skýrslum, enda ákvað ég að eigin frumkvæði að afhenda öll gögn sem ég hafði undir höndum til sænsku lögreglunnar, þegar hún hóf formlega rannsókn á störfum Paolo Macchiarini fyrir tæpum áratug síðan. Gögnin innihalda m.a. nákvæma tímalínu og persónulega tölvupósta, og hafa verið lykilheimildir við að upplýsa málið. Að afhenda slík gögn var ekki sjálfgefið, enda afhjúpuðu þau í sumum tilvikum ófullkomin vinnubrögð af minni hálfu.
  • Í gegnum tíðina hef ég verið mjög opinn fyrir samskiptum við fjölmiðla og litið á það sem hluta af starfi mínu sem prófessor í skurðlæknisfræði. Ég hef einnig lagt í vana minn að svara fjölmiðlum þegar til mín hefur verið leitað. Þetta hefur greinilega orkað tvímælis hjá sumum kollegum mínum og ég mun taka þá gagnrýni til greina. Ég er mannlegur, oft á tíðum fyrirferðamikill og hvatvís, en eflaust líka hégómlegur, ekki síst þegar ég hef komið fram í fjölmiðlum til að ræða málefni sem standa hjarta mínu nærri. Ég hef þó ávallt, og eftir bestu vitund, reynt að greina rétt frá staðreyndum.
  • Ég biðst afsökunar á þeim atriðum í þessu máli sem hefðu betur mátt fara og sneru að mínum störfum sem læknir og fræðimaður, og hversu langan tíma það tók mig að sjá í gegnum Paolo Macchiarini og þann blekkingarvef sem hann skóp, og er vel lýst í þáttunum Bad Surgeon á Netflix. Þetta mál hefur nú fylgt mér í rúmlega 12 ár og valdið mér og fjölskyldu minni ómældum sársauka, sársauka sem mun fylgja mér ævina á enda. Meiri er þó vitaskuld sársauki og missir ekkjunnar og barnanna tveggja, sem mér verður  ítrekað hugsað til.

Að lokum óska ég eftir að  fjölmiðlar virði það að ég er í sjúkraleyfi og mun hvorki svara tölvupóstum né koma í viðtöl.

Virðingarfyllst, 

- Auglýsing -

Reykjavík, 8. janúar 2024 

Tómas Guðbjartsson

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -