Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Staðan á Akureyri og Húsavík slæm – Lögreglan vill fresta öllum viðburðum hjá börnum og unglingum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ljóst er að Covid 19 faraldrinum er hvergi nærri lokið. Það sýna smittölur á Norðurlandi vel.

„Eins og flestum er kunnugt þá hefur Covid smitum fjölgað hratt í okkar umdæmi sl. daga og er staðan sínu verst á Akureyri en þar eru nú 78 virk smit og 990 í sóttkví. Þá eru 5 virk smit á Húsavík og 223 í sóttkví sem hefur talsverð áhrif á allt samfélagið,“ segir í færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

„Höfum við miklar áhyggjur af stöðunni og teljum nauðsynlegt að allir hugi að sinni stöðu og vegi og meti hvað hver geti gert til að stoppa þá útbreiðslu sem er í gangi í dag. Ljóst er að sá aldur sem hvað mest virðist smitast í dag eru börn og unglingar á grunnskólaaldri, þá sér í lagi sá aldur sem ekki er bólusettur.“

Lögreglan beinir þeim tilmælum til fólks „sem hafa með æskulýðs- , íþrótta- og félagstarf að gera hjá börnum og unglingum á grunnskólaaldri að fresta viðburðum, fundum og æfingum fram yfir næstu helgi.

Með því vonumst við til að ná það vel utan um þessa stöðu sem uppi er að þá verði hægt að mælast til þess að slík starfsemi komist aftur af stað. Í tengslum við þetta höfum við átt samtal við bæjar- og sveitarstjóra á Norðurlandi eystra sem telja að sama skapi nauðsynlegt að beina þessum tilmælum inn í okkar samfélag.“

Lögreglan vill að lokum hvetja „foreldra til að huga vel að börnum sínum og fylgjast vel með fá þau einhver einkenni Covid og fara þá með þau í skimun.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -