Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Haustopnun í Hafnarfirði um helgina

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í Hafnarfirði er margt skemmtilegt að gerast um helgina. Við sögðum frá því fyrr í vikunni að Íshúsið fagnar 5 ára afmæli á morgun þar sem hönnuðir og listamenn starfandi í húsinu opna vinnustofur sínar fyrir gestum og gangandi. Margir eru nú þegar farnir að huga að jólagjafakaupum og því tilvalið að grípa tækifærið.

 

Á morgun á Suðurgötu 9 ætla Anthony Bacigalupo og Ýr Káradóttir einnig að vera með formlega haustopnun. Þar reka hjónin The Shed sem við fjölluðum um í 8. tbl. Húsa og híbýla fyrr í sumar.

The Shed er staðsett að Suðurgötu 9 í Hafnarfirði.

Líkt og þar kom fram leggja þau Anthony og Ýr mikið upp úr upplifun og má segja að The Shed vinnustofa, verslun og samkomustaður í senn en markmið þeirra er að gefa af sér til bæjarbúa og þannig stuðla að betra samfélagi. Hjónin hafa um árabil hannað undir merkjum Reykjavik Trading Co. þar sem áhersla er lögð á handgerðar gæðavörur sem eru að mestu unnar úr staðbundnu efni.

Ásamt sinni eigin hönnun selja þau einnig sérvaldar og handgerðar vörur frá Californiu, Mexico og víðsvegar annars staðar úr heiminum.

Garðurinn er einstaklega fallegur og er öllum velkomið að kíkja við og eiga þar notalega stund.

Á dögunum hlutu þau jafnframt viðurkenningu Snyrtileikans fyrir framtak sitt í að fegra umhverfið en það má svo sannarlega segja að þau hafa tekið duglega til hendinni. Þau hafa bæði mikinn áhuga á garðrækt og hænurnar þeirra þrjár setja skemmtilegan svip á garðinn og gefa heimilislegt yfirbragð.

Hænurnar gefa heimilislegt yfirbragð.

Gestum gefst kostur á að sækja hjónin heim á morgun eins og áður sagði á milli kl. 15 og 18 en þá ætla þau meðal annars að bjóða upp á sérbruggaðan epla- og rabarbarasíder frá Ægisgarði ásamt öðrum kræsingum. Nýjar haust- og vetrarvörur verða einnig frumsýndar sem óhætt er að mæla með.

- Auglýsing -
Í versluninni er að finna sérvaldar vörur sem einungis fást hjá þeim ásamt þeirra eigin hönnun. Mynd / Unnur Magna

Við hvetjum því alla eindregið til þess að gera sér ferð í Hafnarfjörðinn um helgina!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -