- Auglýsing -
Tónlistarkonan Glowie, sem heitir í raun Sara Pétursdóttir, og kærasti hennar, Guðlaugur Andri Eyþórsson ljósmyndari, eiga von á sínu fyrsta barni.
Parið birti mynd af komandi barni á Instagram-síðu Glowie í gær og bættu svo við fleiri myndum, meðal annars af því er þau voru nýbúin að taka óléttupróf, skælbrosandi og sæl.

Ljósmynd: Instagram-skjáskot
Mannlíf óskar parinu unga til hamingju með tilvonandi erfingja.