Íslenska indie-folk bandið Minitonka hefur gefið út sína fyrstu EP plötu, Sinking heart. Platan ber með sér sterkan hljóm „slacker“ rokksins, en þó skrítnari og tilraunakenndari en gengur og gerist í þeirri rokk senu.
„Platan er aðallega um þunglyndi, en samt í svona svörtu gríni,“ segir söngvari hljómsveitarinnar, Van Sveins. „Í raun má segja að platan sé nostalgísk sjálfshjálp, fyrir þær stundir þar sem allt ætlar til fjandans … en þú ert samt fullur vonar.“
Platan einkennist af vintage rokk brag, sem næst fram með ákveðnum aðferðum í analogue hljóðblöndun eins og t.d. bergmáli radda og plötu ómun.
Minitonka samanstendur af þeim Van Sveins (Söngur/Gítar), Garðari Inga Jakobssyni (Gítar), Raffaela Brizuela Sigurðardóttir (Hljómborð/Bakrödd) og Símoni Elvar Rúnarssyni (Trommur). Sinking Heart er gefin út af Dog Tunnel Records í London, UK þar sem hún var hljóðblönduð og masteruð í analogue stúdíói.
Hægt er að nálgast Sinking Heart bæði á digital formatti og vínyl hèr: http://www.minitonka.net
Spotify:
https://open.spotify.com/
Bandcamp:
https://dogtunnelrecords.