Laugardagur 27. apríl, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Marta Nordal hættir sem leikhússtjóri LA: „Það er ekki allt auðvelt sem er einhvers virði“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Marta Nordal, sem hefur verið leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar frá árinu 2018, hefur ákveðið að hætta í vor. Ákvörðunina tilkynnti hún á Facebook í gær.

„Það er einstök gæfa að fá að starfa við það sem maður elskar og hefur ástríðu fyrir. Eiginlega ein mesta gæfa sem hægt er að hugsa sér. Nú hef ég verið leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar frá árinu 2018 og notið hverrar stundar enda starf þar sem öll mín þekking, reynsla og sýn kemur saman,“ skrifaði Marta á Facebook í gær.

Og Marta hélt áfram: „Þessi tími hefur verið hreint út sagt stórkostlegur, eiginlega ólýsanlegur og þar hefur hvergi borið skugga á þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Það er ekki allt auðvelt sem er einhvers virði. En uppskeran er líka ríkuleg. Þegar draumur verður að veruleika og til verður sýning sem fólk elskar og nýtur þess að sækja, það er ólýsanleg tilfinning. Þetta þekkir allt leikhúsfólk. En lykillinn að velgengni er fólkið á bakvið verkefnin. Leikhús verður alltaf til í samvinnu og sameiginlegri sýn. Það sem stendur uppúr þegar ég lít tilbaka er mitt einstaka samstarfsfólk hjá [Menningarfélagi Akureyrar] og það hæfileikaríka listafólk sem hefur komið að verkefnunum hjá okkur. Þið hafið gefið mér meira en orð fá lýst og gert mér kleift að láta stóra drauma rætast og njóta hverrar mínútu í að búa þá til. Við eigum þetta saman og ég á ykkur allt að þakka.“

Að lokum segir Marta Nordal: „En allt hefur sinn tíma og hef ég nú ákveðið að hætta sem leikhússtjóri og snúa mér að öðrum verkefnum. Ég er stolt og þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að leiða Leikfélag Akureyrar á undanförnum árum og vonandi átt þátt í að efla það og styrkja. Við höfum sett á svið metnaðarfullar sýningar, stuðlað að fræðslu í leiklistarskólanum og sviðslistabraut MA og átt í margs konar samstarfi við stofnanir og hópa. Nú stíg ég til hliðar og fæ að fylgjast áfram með Leikfélagi Akureyrar vaxa og dafna. Takk elsku samstarfsfólk fyrir gleðina, hláturinn, ástríðuna og stuðninginn og takk áhorfendur fyrir að koma og njóta. Ég kveð með stolti, söknuði og hlýju í hjarta.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -