Laugardagur 27. apríl, 2024
10.8 C
Reykjavik

Þúsundir á Ljósanótt – Gestir létu ekki veðrið trufla hátíðarskapið

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íbúar Reykjanesbæjar létu ekki aftakaveður föstudagskvölds aftra sér frá því að mæta til Árgangagöngu upp úr hádegi í gær, laugardag, og þramma undir lúðrablæstri að hátíðarsvæði þar sem Kjartan Már Kjartansson bæjarstóri bauð gesti Ljósanætur velkomna.

Glæsileg flugeldasýning gærkvöldsins.
Ljósmynd: Omar Ricardo Rondon Guerrero.

Dagskrá laugardagsins fór að mestu fram samkvæmt áætlun en skipuleggjendur hátíðarinnar héldu þó áfram að hugsa í lausnum og barnadagskrá sem fyrirhuguð var utandyra var flutt til svo yngsta kynslóðin gæti sem best notið hennar. Þannig mættu hin geysivinsælu Lára og Ljónsi húsfylli barna í Stapa á laugardagsmorgni og hoppukastalar sem ekki taldist öruggt að hafa uppblásna úti voru vel nýttir innandyra í Reykjaneshöll.

Þúsundir voru svo saman komnar á stórtónleikum Ljósanætur í gærkvöldi þar sem veðurguðirnir voru búnir að hrista úr sér mestu skapvonskuna og sýndu á sér sparihliðina. Stemningin á svæðinu var gríðarlega góð enda boðið upp á frábæra tónleika sem einnig var útvarpað á Rás 2. Ljósin á Berginu, sem hátíðin dregur nafn sitt af, kviknuðu við mikil fagnaðarlæti í lok magnaðrar flugeldasýningar, og munu þau lýsa upp myrkasta skammdegið í vetur og minna á sköpunargleðina og kraftinn í samfélaginu sem kristallast svo vel á Ljósanótt.

Frá tónleikum gærkvöldsins.
Ljósmynd: Omar Ricardo Rondon Guerrero.

Dagskrá Ljósanætur heldur áfram í dag með sýningum, leiðsögnum í listasafni og byggðasafni og ýmsum tónleikum. Meðal annars fer fram hátíð í Höfnum, sem er eitt hverfa Reykjanesbæjar, og því nóg um að vera fyrir á fjórða og síðasta degi Ljósanætur sem var um margt óvenjuleg í ár og sýndi í raun hvaða sess hátíðin skipar í hjörtum íbúa sem neituðu að láta í minnipokann fyrir náttúruöflunum og héldu sína Ljósanótt með stæl.

Mikil stemmning var á tónleikunum í gær.
Ljósmynd: Omar Ricardo Rondon Guerrero.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -