Laugardagur 27. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Biskupsframboð – Einkunnagjöf

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Endurtaka þarf tilnefningar til biskupskjörs og er nú leikhlé.

Þetta gefur mér sem utanþjóðkirkjuprestii möguleika á að koma með hugleiðingar um þá presta sem oftast hafa verið nefndir til leiks, í stafrófsröð. Ég splæsi einkunnum á liðið.

Sr. Bjarni Karlsson: Alþýðlegur kandídat, með vissa fjarlægð frá biskupsstofu og stjórnsýslu f.v. biskups.Það er jákvætt. Full hallur undir daður þjóðkirkjunnar við strauma samtímans, og  ekki líklegur til stórræða, en þó almennt frambærilegur. Einkunn mín 6.5
Sr. Elínborg Sturludóttir: Samkvæm sjálfri sér og traustur kandidat, prestur við Dómkirkjuna, sem er plús. Yrði góður biskup, en hefur kannski komist full létt áfram sakir trausts tengslanets. Hefur þó næga fjarlægð gagnvart meintum spillingarmálum innan þjóðkirkjunnar, en kannski full litla reynslu í mannauðsmálum. En samt: Meðmæli frá mér. Einkunn mín: 8.5
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson. Biblíutrúr kandídat með feiknarlekt bakland safnaðarfólks síns í Kópavogi, höfðar til breiðra þjóðfélagshópa og er ótengdur fráfarandi starfsliði biskups. Yrði góður biskup, þá eitthvað yrði hann að minnka við sig á grasrótinni til að geta sinnt hinu há embætti. Ég mæli með honum. Einkunn mín 9.5
Sr. Guðrún Karlsdóttir: Dugleg og frambærileg, en mætti sýna breiðari skilning á prestsembættinu. Að mínu mati fulltrúi kvennaguðfræði, sem ég aðhyllist ekki mjög. Eðlilegt framboð góðs kandídats. Einkunn mín er samt aðeins 5.0
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Ekki líkleg til neinna stórræða. Einkunn mín 3.0
Sr. Kristján Björnsson. Alltof flæktur í óleyst mál. Ekki góður kostur. Einkunn mín 0.0
Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir: Fínn frambjóðandi, en full ung í starfi. Dugleg í félagsmálum. Vinsæl og farsæl. Töfft framboð. Mín einkunn er samt aðeins 7.25, sem er reyndar ágætt.
Sr. Svavar Jónsson. Fínn kostur, allt gott kemur hvort eð er að norðan, sagði einhver. Næg fjarlægð frá spillingu og veseni. Farsæll kandídat. Mjög fjölhæfur prestur með margvísleg tengsl.  Meðmæli mín. Einkunn 8.0
Mér líst best á þríeykið Guðmund, Elínborgu og Svavar, með Ninnu sem fjórða kost.
Þetta ritar Sr. Skírnir Garðarsson

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -