Akraneskaupsstaður á 80 ára afmæl á þessu ári og af því tilefni færðu hjónin Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir og Guðmundur Ragnar Guðmundsson, eigendur Prentmets Odda, kaupstaðnum málverk að gjöf. Málverkið er af Bíóhöllinni á Akranesi og er eftir Bjarna Skúla Ketilsson eða Baska eins og hann kallar sig.
Samkvæmt vefsíðu Akraneskaupsstaðar tók Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á móti málverkinu fyrir hönd bæjarins og þakkaðið hjónunum kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Sagði Sævar við tilefnið að það væri mjög gaman að fá þetta málverk af Bíóhölinni þar sem hún hafi verið byggð sama ár og bærinn fékk kaupstaðarréttindin árið 1942. Þá sagði Sævar einnig að Bíóhöllin hafi verið fastur samastaður fyrir hinar ýmsu sviðslistir sem bæjarbúar hafa getað notið í gegnum tíðina.