Laugardagur 27. apríl, 2024
6.8 C
Reykjavik

Big Bang stjarna stödd á Íslandi! – „Pissuðum á okkur af hlátri“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Big Bang stjarnan Kaley Cuoco er stödd í Reykjavík um þessar mundir. Sást hún í gær við tökur á horni Skólavörðustígs og Laugavegar.

Fréttablaðið sagði frá þessu í gær. Samkvæmt Fréttablaðinu er hún stödd hér á landi vegna upptöku á HBO þáttunum The Flight Attendant en hún er í aðalhlutverki. Þar leikur hún kærulausa og drykkfellda flugfreyju sem vaknar eftir skrautlega nótt á hótelherbergi með lík manns við hlið sér. Hún man ekki almennilega eftir nóttinni og þarf að reyna að púsla saman atburðarásinni. Hún fer síðan að efast um sakleysi sitt. Um 50 manns vinnur við tökurnar.

Leikkonan skemmtilega hefur verið dugleg að setja inn myndir á Instagram og virðist skemmta sér drottningalega á Íslandi. Sagðist hún í viðtali við People vera afar spennt fyrir Íslandsförinni. Á Instagram má sjá að þegar hún var ekki í tökum fór hún ásamt vinum sínum á Domino´s Pizza og á Aktu Taktu. „Pissuðum á okkur af hlátri,“ sagði Kaley á Instagram.

Kaley og vinir
Mynd: Instagram

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -