Enn hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvort knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson verði ákærður fyrir kynferðisbrot eða hvort mál hans verði fellt niður. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Gylfi Þór var handtekinn í Bretlandi fyrir rúmu ári síðan vegna gruns um brot gegn ólögráða einstaklingi. Síðan þá hefur hann verið laus gegn tryggingu og í farbanni í Bretlandi. Farbannið rann út á dögunum og enn hefur ekkert verið gefið upp varðandi framhald málsins.
Gylfi Þór hafði ekki sést opinberlega allt frá handtökunni, þar til hann mætti á leik Íslands gegn Ítalíu á Evrópumóti kvenna í knattspyrnu í síðustu viku. Hann mætti síðan einnig á leik Íslands gegn Frakklandi í gær, þar sem hann hvatti frænku sína, Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur, áfram.
Karólína Lea var að taka þátt í sínu fyrsta stórmóti og var talin meðal bestu leikmanna liðsins á mótinu.