Laugardagur 27. apríl, 2024
6.8 C
Reykjavik

Lögreglan auglýsir eftir vitnum að umferðaslysi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gærmorgun, þriðjudaginn 31. janúar. Tilkynning um slysið barst kl. 8.21, en það varð á móts við IKEA þar sem rákust saman þrjár bifreiðar. Talið er að ein þeirra hafi bilað og stöðvast og ökumenn sem á eftir komu ekki náð að bregðast við í tæka tíð. Tveir ökumannanna voru fluttir á slysadeild, en allar bifreiðirnar voru fjarlægðar af vettvangi með dráttarbíl.

Þau sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið [email protected]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -