Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Dópsali í Breiðholti handtekinn og sakaður um peningaþvætti – Rafsuðuþjófur slapp undan lögreglu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Maður sem snæddi á veitingastað í miðborginni neitaði að borga fyrir greiðann. Lögregla var kölluð til en óljóst er með málalok. Annar einstaklingur neitaði að yfirgefa veitingastað. Sá var í annarlegu ástandi. Lögreglan kom að málum og náði að vísa manninum út.

Drukknir eða vímaðir ökumenn voru víða á ferð um borgina í gærkvöld og nótt. Einn var tekinn í miðborginni og hann sendur í sýnatöku og látinn laus. Hann var með fíkniefni í fórum sínum. Annar ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna í austborginni. Sá var einnig látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.

Umferðarslys varð í miðbænum. Blessunarlega urðu ekki ekki slys á fólki en bifreiðarnar voru stórskemmdar og fjarlægðar með dráttarbifreið frá Krók Ökumaður var stöðvaður fyrir of hraðan akstur á svipuðum slóðum í nótt. Sá ók á 133 kílómetra hraða þar sem aka má á 60 kílómetra hraða. Hann var umsvifalaust sviptur ökuréttindum

Laust eftir miðnætti var haft samband við lögreglu vegna manns í annarlegu ástandi á rangli í Garðabæ. Lögreglan kom til hjálpar og ók honum heim til sín. 

Í Breiðholti var maður handtekinn vegna gruns um að selja fíkniefni og peningaþvætti. Hann var læstur inni og gistir hann fangageymslu.

Eldur logaði í skúr í hverfi 113.  Grunur er um íkveikju en gerandi ókunnur. Málið er í rannsókn. Þá var brotist inn á verkstæði í austurborginni. Þaðan var stolið rafsuðuvél. Óljóst er með gerendur í því máli og gengur rafsuðuþjófurinn laus.

- Auglýsing -

Lögreglan hélt áfram að leita uppi óskoðaðar bifreiðar eða bvifreiðar með vangreiddar tryggingar. Skráningarnúmer voru af þremur bifreiðum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -