Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Alvarlegt bílslys á Vestfjörðum – Bílvelta á Steingrímsfjarðarheiði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá því að alvarlegt umferðaslys hafi átt sér stað skömmu eftir klukkan fimm nú síðdegis á norðanverðri Steingrímsfjarðarheiði. Ökumaðurinn virðist á lífi en þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á vettvangi og mun flytja hann til Reykjavíkur.

Tilkynning lögreglunnar í heild sinni:

Lögreglunni á Vestfjörðum barst laust fyrir kl. 17 tilkynning um umferðarslys á norðanverðri Steingrímsfjarðarheiði sem liggur milli Steingrímsfjarðar og Ísafjarðardjúps. Viðbragðsaðilar fóru þegar á vettvang. Bifreið hafði oltið út af veginum og var ökumaður einn í bifreiðinni. Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á vettvangi og mun flytja ökumanninn til Reykjavíkur. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Vegurinn er ekki lokaður vegna slyssins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -