Ekki hefur dregið úr tilfellum nikótíneitrana barna þrátt fyrir varnaðarorð Eitrunarmiðstöðvar. Mest ber á slíkum eitrunum vegna nikótínpúða. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Athygli var vakin á málinu í vor. Eins og kemur fram í frétt RÚV er Eitrunarmiðstöð Landspítala enn að fá tvö til þrjú símtöl að meðaltali á viku vegna níkótíneitrana hjá börnum. Um liðna helgi komu tvö börn á spítalann vegna slíkra eitrana.
Helena Líndal, sérfræðingur í klínískri eiturefnafræði hjá Eitrunarmiðstöðinni segir miðstöðina hafa áhyggjur af þróuninni. Um mjög eitruð efni sé að ræða og afar hættulegt þegar lítil börn komist í þau.
Börn komast ekki eingöngu í nikótínpúða í heimahúsum, heldur einnig utandyra, þar sem fólk hendi púðunum gjarnan á víðavangi. Mikilvægt sé að biðla til fólks að farga slíkum púðum á öruggan hátt.
„Það væri ekkert verra ef það kæmu einhverjar reglur sem hægt væri að fylgja,“ segir Helena í samtali við RÚV vegna málsins.