Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Krafa um að Creditinfo-Lánstraust hætti skráningum á vanskilaskrá

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Alþýðusamband Íslands og Neytendasamtökin krefjast þess að Creditinfo-Lánstraust hætti tafarlaust skráningum á vanskilaskrá sína vegna greiðsluvanda tengdum COVID-19 og að enginn verði skráður á vanskilaskrá vegna þessa út árið 2020.

„Efnahagslegar afleiðingar vegna Covid19 verða þungbærar og sennilega umfangsmeiri en fyrri efnahagshremmingar. Fyrirtæki og einstaklingar munu verða fyrir skakkaföllum, sem munu hafa keðjuverkandi áhrif og hafa afleiðingar inn í nánustu framtíð. Margir lenda í því þessa dagana að tekjur skerðast að miklu eða jafnvel öllu leyti. Óvíst er hvenær fólk fær tækifæri til að afla tekna til að standa undir sínum skuldbindingum aftur,” segir í tilkynningu frá ASÍ og Neytendasamtökunum.

Í henni kemur jafnframt fram að slík skráning hafi í för með sér miklar íþyngjandi og langvarandi afleiðingar fyrir þann sem í henni lender:

„Þannig hefur Creditinfo-Lánstraust heimild til að halda fólki á vanskilaskrá í fjögur ár eftir að það gerir upp skuldir sínar. Á meðan er einstaklingum gert ókleift að stunda eðlileg viðskipti, svo sem fá greiðslukort, tryggingar eða jafnvel leiguhúsnæði. Það tímabundna áfall sem fólk verður fyrir um þessar mundir má ekki hafa langvarandi afleiðingar.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -