Loftbelgur með hóp Íslendinga innanborðs brotlenti í dag, en þetta kemur fram á vefmiðlinum DV.
Segir frá að hópur Íslendinga hafi gert sér glaðan dag í frönsku borginni Liége; fór hópurinn í flugferð með loftbelg.
Eftir um það bil klukkustund í loftinu var tími til á að snúa aftur til jarðar; ekki fór betur en svo að loftbelgurinn brotlenti: Karfan sem farþegarnir íslensku voru í hvolfdi með þeim afleiðingum að tvær konur úr ellefu manna hóp féllu til jarðar og slösuðust; voru fluttar með hraði af sjúkrabíl og inn á sjúkrahús.
DV segir að samkvæmt heimildum sínum hafi önnur konan hnébrotnað; sú kona er Guðlaug Ingvadóttir, móðir Guðmundar Felix Grétarssonar, sem hefur búið í Frakklandi um árabil og fékk fræga handaágræðslu. Guðlaug hefur um allnokkurt skeið aðstoðað við endurhæfingu sonar síns.
Rannsókn er hafin að tildrög slyssins samkvæmt frönskum fjölmiðlum.
Mannlíf sendir Guðlaugu sínar bestu batakveðjur.