Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Rafræn sakavottorð nú aðgengileg

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sakavottorð er nú hægt að sækja með með rafrænum hætti á island.is. Um svokallað  einkavottorð er að ræða sem staðfestir að ekkert brot er í sakaskrá viðkomandi einstaklings.

„Að sakavottorð séu komin á rafrænt form gerir til dæmis skrefin léttari þegar sótt er um nýtt starf og er einn þáttur í einfaldari samskiptum við ríkið,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.

Ferlið er einfalt, umsækjandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og samþykkir svo að gögn verði sótt úr sakaskrá. Greiða þarf fyrir vottorðið eins og áður en að því loknu er sakavottorð sent í pósthólfið á Ísland.is ásamt kvittun fyrir afgreiðslu.

Skjalið sem inniheldur vottorðið er rafrænt undirritað af sýslumönnum, sem hægt er að staðfesta með því að opna skjalið í Acrobat Reader og smella á stimpilinn.

Hér má sækja um sakavottorð og er allar nánari upplýsingar að finna á vef sýslumanna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -