Þriðjudagur 19. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Rauð viðvörun á morgun

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Veður­stofa Íslands hef­ur gefið út rauða viðvör­un fyrir morgundaginn vegna norðan ofsa­veðurs og stór­hríðar á Strönd­um og Norður­landi vestra. Rauða viðvörunin gildir frá 17:00 á morgun til klukkan 01:00 aðra nótt.

„Spáð er norðan ofsaveðri eða fárviðri (25 til 33 m/s) með mikilli snjókomu og skafrenningi. Búast má við víðtækum samgöngutruflunum og tjóni og/eða slysum ef aðgát er ekki höfð. Ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi. Búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda, allt að 10 m. ölduhæð og líkur á að smábátar geta laskast eða losnað frá bryggju. Fólki er bent á að fylgjast vel með veðurspám og viðvörunum,“ segir á vef Veðurstofu Íslands um rauðu viðvörunina.

Slæmt veður verður um land allt á morgun og gildir appelsínugul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu, Vestfjörðum, Vesturlandi, Suðurlandi, Norðurlandi og hálendinu. Á Austfjörðum og Suðausturlandi er viðvörunin gul.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir fólk á að huga að lausamunum og tryggja að þeir fjúki ekki. „Fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám í kvöld og fyrramálið, en útlitið er allt annað en gott fyrir morgundaginn.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -