Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Sjálfboðaliðar Landsbjargar sigursælir í valinu á manneskju ársins 

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mannlíf gaf lesendum sínum kost á að taka þátt í vali á manneskju ársins 2019 með netkosningu á man.is. Valið stóð á milli einstaklinga sem hafa skarað fram úr á liðnu ári og verið áberandi í umræðunni.

 

Niðurstöður eru ljósar og eru félagar Slysavarnafélagsins Landsbjargar greinilega ofarlega í hugum og hjörtum fólks og fengu afgerandi kosningu eða 20% atkvæða. Í öðru sæti voru nemendur Hagaskóla með 15% atkvæða og þriðja sæti deila Guðrún Ögmundsdóttir, Haraldur Þorleifsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir með 11% atkvæða hvert.

Slysavarnafélagið Landsbjörg – 1. sæti

Sjálfboðaliðar slysavarnafélagsins Landsbjargar eru ávallt boðnir og búnir að aðstoða fólk í neyð. Félagið er þverskurður af íslensku þjóðinni og innan raða þess eru einstaklingar af öllum kynjum, úr öllum starfsstéttum, alls staðar á landinu. Félagar Landsbjargar stóðu vaktina í óveðrinu sem geisaði á landinu í desember, sem og í leitum að einstaklingum bæði í lok árs og byrjun ársins 2020.

Zainab Safari, Amíra Snærós Jabali, Sindri Bjarkason Elín Sara Richter, Magnús Guðmundsson
Mynd / Aldís Pálsdóttir

Nemendur í Hagaskóla – 2. sæti

Amíra Snærós Jabali, Elín Richter, Sindri Bjarkason og og skólasystkini þeirra börðust hetjulega fyrir því að skólasystir þeirra, Zainab Safari og fjölskyldu hennar, yrði ekki vísað úr landi. Íslensk stjórnvöld höfðu í tvígang hafnað því að taka mál fjölskyldunnar til efnislegrar meðferðar og þar með að skoða möguleikann á því að þau ættu þess kost að setjast að hér á landi. Skólasystkinin neituðu að gefast upp og fjölskyldan fékk að lokum dvalarleyfi.

- Auglýsing -
Guðrún Ögmundsdóttir
Mynd / Hákon Davíð Björnsson

Guðrún Ögmundsdóttir, baráttukona og fyrrum þingmaður – 3. sæti

Guðrún lést að morgni gamlársdags, 69 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein sem hún greindist með áramótin 2018-2019. Guðrún, sem barðist alla tíð ötullega fyrir réttindum minnihlutahópa og þeirra sem minna mega sín, sagði í viðtali við Mannlíf að hún væri full þakklætis og stolt af því sem áunnist hefði. Þrátt fyrir að hafa verið sæmd fálkaorðunni og heiðursmerki Samtakanna ´78 í fyrra sagði hún stærstu viðurkenninguna vera að skjólstæðingar hennar litu á hana sem eina úr þeirra hópi.

Haraldur Þorleifsson. Mynd / Ueno

Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno – 3. sæti

- Auglýsing -

Haraldur Þorleifsson stofnaði fyrir fimm árum stafræna hönnunarfyrirtækið Ueno, sem í dag er með 65 starfsmenn á Íslandi og í Bandaríkjunum. Fyrirtækið er í stöðugum vexti og segir Haraldur fyrirséð að fyrirtækið muni halda áfram að stækka og þróast. Haraldur sem er fæddur og uppalinn í Vesturbænum hefur vegna meðfædds vöðvarýrnunarsjúkdóms notað hjólastól frá því hann var 25 ára en hann lætur sjúkdóminn ekki stöðva sig.

Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Mynd / Hallur Karlsson

Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarkona – 3. sæti

Kvikmyndagerðarkonan Hrafnhildur Gunnarsdóttir frumsýndi á árinu þætti sína Svona fólk. Þættirnir eru afrakstur 27 ára viðleitni Hrafnhildar til að skrásetja og varðveita samtímaheimildir um baráttu homma og lesbía; erfiðleikana, átökin og sigrana. Um leið eru þeir áhugaverð heimild um þær miklu breytingar og framfarir sem hafa orðið í íslensku samfélagi síðustu áratugi. Þættirnir hafa því ótvírætt sögu- og menningarlegt gildi fyrir þjóðina.

Aðrir tilnefndir í stafrófsröð eru:

Myndir / Aðsend, Aldís Pálsdóttir og Arnþór Birkisson

Gunnar Karl Ólafsson, James McDaniel og Sveinn Rúnar Einarsson

Gunnar Karl, James og Sveinn Rúnar stigu fram í viðtali við Mannlíf og lýstu reynslu sinni eftir nauðgun og kynferðislegt ofbeldi. Sögðu þeir sögur sínar til að opna umræðuna um kynferðislegt ofbeldi gagnvart karlmönnum, auka skilning á þeim málum og benda á hversu nauðsynlegt sé að leita sér aðstoðar ef einstaklingar verða fyrir slíku ofbeldi.

Haukur Örn Birgisson
Mynd / Hallur Karlsson

Haukur Örn Birgisson

Haukur Örn Birgisson, hæstaréttarlögmaður og formaður Golfsamband Íslands, opnaði sig um sára lífsreynslu, en hann og Guðríður Magndís Guðmundsdóttir, sambýliskona hans, eignuðust andvana tvíbura eftir 22 vikna meðgöngu. Pistill sem hann skrifaði og viðtal í Mannlíf vöktu mikil viðbrögð, en Haukur sagðist ekki vanur að bera tilfinningar sínar á torg.

Hildur Guðnadóttir
Mynd /EPA

Hildur Guðnadóttir tónskáld

Hildur Guðnadóttir, tónlistarkona og tónskáld. Sem kunnugt er hefur Hildur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga á þessu og síðasta ári fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker og þáttunum margrómuðu Chernobyl. Hefur Hildur þannig náð að stilla sér upp í röð með fremstu kvikmyndatónskáldum í heimi á árinu 2019 og vekur enn mikla athygli á nýju ári.

María Rut og Ingileif
Mynd / Facebook

Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristjánsdóttir aktivistar

Hjónin Ingileif Friðriksdóttir fjölmiðlakona og María Rut Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, hafa lengi haldið úti hinum vinsæla fræðsluvettvangi Hinseginleikanum. Saman hafa þær átt þátt í að fræða ungmenni um hinsegin veruleika, veita þeim fleiri hinsegin fyrirmyndir og brjóta niður staðalímyndir.

Sigurþóra Bergsdóttir
Mynd / Aldís Pálsdóttir

Sigurþóra Bergsdóttir framkvæmdastjóri

Sigurþóra Bergsdóttir missti son sinn Berg Snæ Sigurþórsson, sem svipti sig lífi í kjölfar kynferðisofbeldis. Í kjölfarið ákvað Sigurþóra að stofna stuðningssetrið Headspace með það að markmiði að auka þjónustu við ungt fólk sem dettur á milli kerfa í samfélaginu og á erfitt með að finna heildstæða þjónustu og stuðla að því að ungt fólk í vanda fái aðstoð fyrr.

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -