Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Tveir handteknir í tengslum við kannabissælgætissölu – Lögðu einnig hald á vape hylki og vökva

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan fann töluvert magn kannabissælgæta í tveimur húsleitum.

Undanfarið hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakað mál sem snýr að umfangsmikilli sölu og dreifingu á kannabisefnis í formi sælgætis, hlaupaböngsum og súkkulaði.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að töluvert magn þessara kannabissælgæta hafi verið handlagt í tveimur húsleitum á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess tók lögreglan í vörslu sína mikið magn af vape hylkjum, pennum og vökva sem innihélt THC. Grunur er um að sömu aðilar hafi einnig stundað sölu og dreifingu kannabisefna með þeim hætti en í fyrrgreindum aðgerðum var lagt hald á reiðufé. Tveir karlmenn um þrítugt voru handteknir í þágu rannsóknarinnar en henni miðar vel. Þeir eru nú lausir úr haldi.

Lögreglan hvetur foreldra eða forráðamenn til að vera á varðbergi og ræða við börn sín um þær hættur sem fylgja þegar fíkniefni eru annars vegar. Mál sem þetta er ekki einsdæmi, en önnur af sama toga hafa líka komið upp í öðrum lögregluumdæmum, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -