Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 8. júní, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn er grunaður um mörg brot á undanförnum vikum, meðal annars nauðgun, ránstilraunir og líkamsárásir. Síðasta brotið var framið í austurborginni í gærmorgun þar sem maðurinn var handtekinn á vettvangi. Gæsluvarðhaldið grundvallast meðal annars á því að nauðsynlegt sé að verja aðra fyrir árásum hans.
Var úrskurður héraðsdóms kærður til Landsréttar.
Lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.