Nú þegar helgin er handan við hornið er vert að líta til veður og skoða hvar góða veðrið verður að finna. Víðast hvar á landinu verður skýjað en hlýjast verður norðanlands.
Í textaspá Veðurstofunnar segir:
Á föstudag:
Suðlæg átt, 3-10 m/s og bjart með köflum norðan og austantil en vaxandi suðaustanátt suðvestantil, 8-15 m/s, þykknar upp og fer að rigna þar eftir hádegi. Hiti 10 til 17 stig hlýjast norðanlands.
Á laugardag:
Suðaustlæg átt, 5-13 m/s og rigning suðaustantil annars víða skúrir. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
Á sunnudag:
Vestan 5-13 m/s. Dálítil væta sunnan jökla fyrir hádegi en skúrir eða rigning um landið norðanvert. Léttir til syðra eftir hádegi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast suðaustantil.