Líkt og flestir hafa tekið eftir þá liggur Facebook Messenger niðri hjá flestum á Íslandi. Líklega er það algengasti samskiptamáli landsmanna og óttast sumir það versta.
Á Twitter eru sumir sannfærðir um að stóri Messenger-lekinn muni kóróna slæmt ár. Því hefur lengi verið spáð að það sé einungis tímaspursmál þangað til öll samskipti þar verði lekið á netið. Flestir hafa látið ýmislegt flakka á Messenger sem þolir ekki dagsljós.
Kristín Soffía Jónsdóttir borgarfulltrúi segir þetta búið ef það reynist rétt. „Komið að þessu. Lífi mínu verður formlega aflýst. Stóri messenger lekinn. Sorrí með mig,“ skrifar hún. Hún er ekki ein um þessa skoðun en hér fyrir neðan má sjá fleiri tíst um málið.
Komið að þessu. Lífi mínu verður formlega aflýst. Stóri messenger lekinn. Sorrí með mig. https://t.co/UMyr6eMLs1
— Kristín Soffía (@KristinSoffia) December 10, 2020
Svona ef þið voruð að spá í hvernig 2020 myndi enda.
Bamm!!! Stóri Gagnalekinn! pic.twitter.com/7ZlMRPxtu9
— €irikur Jónsson (@Eirikur_J) December 10, 2020
Ég held að ég hafi verið hakkaðar.
Er að sjá allskonar dylgjur í mínu nafni sem ég kannast bara alls ekki við að hafa skrifað.
— €irikur Jónsson (@Eirikur_J) December 10, 2020
Geggjaður endi á árinu að fá alvöru Messenger gagnaleka😜 pic.twitter.com/IHpLUstiTi
— Hrafn Kristjánsson* (@ravenk72) December 10, 2020
Stóri Lekinn™ væri auðvitað fullkomin slaufa á 2020.
— Bobby Breiðholt (@Breidholt) December 10, 2020
Líður smá eins og þegar sæstrengurinn var alltaf að rofna pic.twitter.com/canfwmxGS3
— Árni Plúseinn (@arnipluseinn) December 10, 2020
oh ég vissi að ég átti ekki að opna þetta videó á messenger í morgun.. sorry krakkar.. þeir eru að vinna í þessu
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) December 10, 2020