Föstudagur 26. apríl, 2024
2.6 C
Reykjavik

LÝSA Rokkhátíð samtalsins fer fram af fullum krafti

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

LÝSA – Rokkhátíð samtalsins hófst í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gær, en hátíðin stendur yfir föstudag og laugardag og eru yfir 50 viðburðir á dagskrá.

Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, setti hátíðina og Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdarstjóri LÝSU, og Jón Gnarr, skemmtikraftur og fyrrum borgarstjóri, héldu ávörp. Í ræðu sinni þakkaði Þuríður Helga þátttakendum LÝSU sem með viðburðum sínum, krafti og áhuga gera hátíðina að því sem hún er.

„Það er ykkur að þakka að hér fara fram yfir 50 viðburðir þar sem ljósi er varpað á fjölmörg ólík málefni. Nafnið, LÝSA Rokkhátíð samtalsins vísar einmitt til þess að á hátíðinni á sér stað upplýsandi samtal um samfélagið og kastljósinu er beint að margvíslegum hagsmunamálum. Rokkið vísar líka til þeirrar stemmingar sem er í loftinu og þess að það er bara skemmtilegra að hafa rokk með í öllu sem við gerum,“ sagði Þuríður Helga í ræðu sinni.

Eftir setninguna steig tónlistarfólkið Andrea Gylfadóttir og Kristján Edelstein á svið og skapaði notalega stemningu með fallegri tónlist sinni.

Framundan er fjölbreytt dagskrá. SUNN – Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, Bandalag háskólamanna, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Krabbameinsfélagið er á meðal viðburðahaldara í dag. Klukkan 15:30 fær svo fjölmiðlakonan Guðrún Sóley Gestsdóttir til sín góða gesti í sófaspjall undir yfirskriftinni Speglar listin samfélagið? Í sófann til Guðrúnar mæta Jón Gnarr, Matthías Tryggvi Haraldsson, úr Hatara, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, teiknari og tónlistarkóna, og Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands. Tónlistarmaðurinn Mugison tekur svo nokkur lög.

- Auglýsing -

Laugardagurinn hófst á fyrirlestrinum Fljúgðu inn í haustið með Sölva Tryggva og svo munu Barnaheill, Landsvernd, Umboðsmaður barna, Iðnfélögin, Félag sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Alþingi og Íslandsbanki standa fyrir viðburðum ásamt ýmsum öðrum. Klukkan 16 verður aftur sófaspjall en þá er komið að Sölva Tryggvasyni að taka á móti gestum í sófann. Þar á eftir stígur uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir á svið og svo endar kvöldið með súpu frá Samfylkingunni og notalegum tónum tónlistarmannanna Jóns Ólafssonar og Stefáns Hilmarssonar.

Allir viðburðir LÝSU er opnir öllum. Engin skráning og enginn aðgangseyrir.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -