Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Mynd dagsins: Guðni forseti bjargaði Kríu og gleðst yfir að hún dafnar vel

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, prýðir mynd dagsins þar sem hann gleðst yfir því hversu vel Kríu virðist vegna í dag. Þar er á ferðinni kvenkyns fálki sem forsetinn bjargaði fyrir ári síðan.

Guðni greinir frá björguninni á forsetasíðu sinni á Facebook og birtir þar jafnfram myndir sem teknar voru núna yfir jólin. Þær sýna hversu vel fálkanum virðist vegna í dag. „Fyrir ári var slösuðum fálka komið í skjól hér á Bessastöðum. Í ljós kom að fuglinn var kvenkyns og var gefið nafnið Kría. Hún braggaðist og náði frekari bata í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Í september gerðist það svo að þegar flytja átti Kríu milli búra flaug hún til fjalla. En þar með er öll sagan ekki sögð,“ segir Guðni og bætir við:

Þorfinnur ljósmyndari náði þessari góðu mynd af fálkanum sem forsetinn bjargaði.

„Laust fyrir jól náði Þorfinnur Sigurgeirsson fuglaskoðari mynd af fálka á Garðskaga og merki á fæti hans. Nær öruggt er að þarna var Kría á ferð. Hér að neðan er mynd Árna Sæbergs af mér og Kríu um jólin í fyrra og svo myndir Þorfinns af þessum ágæta fálka um ári síðar.“

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -