Laugardagur 27. apríl, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Ögmundur segir að stjórnvöld mismuni umsækjendum: „Ósvífin fullyrðing væri hún ekki sönn“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gamli stjórnmálarefurinn Ögmundur Jónasson telur að íslensk stjórnvöld mismuni umsækjendum um alþjóðlega vernd hér á landi; vísar Ögmundur, sem eitt sinn var dómsmálaráðherra, í meðhöndlun stjórnvalda á fólki frá Úkraínu og Venesúela sem tekið er opnum örmum hér á landi að mati hans á meðan fólk frá öðrum stríðshrjáðum löndum fær ekki sömu meðferð.

Kemur þetta fram í aðsendri grein Ögmunds sem birtist í Morgunblaðinu; þar segir Ögmundur til að mynda að fólk sem NATO-ríki telji skjólstæðinga sína fái aðrar viðtökur en þeir sem eigi ekki þennan sama bakhjarl.

„Þannig er fólk frá Úkraínu og Venesúela boðið velkomið án þess að aðstæður hvers og eins séu teknar til skoðunar. Fólk sem kemur annars staðar frá, jafnvel frá átaka- og hörmungarsvæðum, fær hins vegar allt aðrar móttökur. Þá er lagst ítarlega yfir persónulegar aðstæður og kannað hvort viðkomandi sæti í raun og veru ofsóknum í heimalandi sínu eða sé raunveruleg hætta búin,“ segir Ögmundur og bendir á að íslensk stjórnvöld líti svo á að íbúar Venesúela búi við lífshættuleg skilyrði vegna stjórnarfarsins í heimalandinu; Ögmundur segir að um sé að ræða hápólitíska ákvörðun sem byggi á forskrift bandarískra yfirvalda.

„Þetta væri ósvífin fullyrðing væri hún ekki sönn, beinlínis skjalfest í rökstuðningi íslenskrar stjórnsýslu. Í greinargerð kærunefndar útlendingamála frá 18. júlí síðastliðnum þar sem fjallað er um hælisleitendur frá Venesúela er ítarlegur pólitískur kafli um stjórnmálaþróun í Venesúela, samhljóða álitsgerðum bandarísku utanríkisþjónustunnar og stofnunum sem þjóna henni, og jafnframt áþekkur skrifum sem stundum má sjá um flóttann frá „sæluríkjum sósíalismans“ eins og það er kallað í háðungarskyni um ríki sem reyna að endurheimta auðlindir lands síns frá alþjóðlegu auðvaldi; er síðan refsað með skelfilegum afleiðingum fyrir efnahaginn, innviðir lagðir í rúst og áður en yfir lýkur mannréttindin einnig skert þegar aðförin að þeim verður blóðug og þau grípa til varna,“ segir Ögmundur.

Bætir við:

„Framangreindar ábendingar og hugleiðingar hafa ekkert með það að gera hvort hingað eigi að bjóða velkomið fólk til að lifa og starfa á Íslandi, heldur um grunn hæliskerfisins. Alþjóðleg vernd er byggð á flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna sem var samþykktur eftir seinna stríð. „Aldrei aftur“ var þá viðkvæðið og fólk skyldi njóta verndar til skjóls væri það á flótta undan ofsóknum og stríði. Við eigum að standa við þessar skuldbindingar og gera það vel. En við eigum líka að verja þessa skipan fyrir misnotkun. Þegar ríkisborgarar ákveðinna ríkja eru teknir fram fyrir aðra á pólitískum forsendum þá er það misnotkun. Ég segi þetta allt að gefnu tilefni. Ég hef nefnilega horft upp á einstaklinga og fjölskyldur annars staðar frá rekið úr landi og að því er ég óttast, út í opinn dauðann. Þetta fólk á sér hins vegar engan bakhjarl í ráðandi öflum veraldar. Og það eru þau öfl sem stilla mannréttindakompás íslenskra stjórnvalda.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -