Ragnar Auðun Árnason stjórnamálafræðingur afhjúpar tvískinnung Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, vegna yfirlýsinga þess síðarnefnda að þátttaka í þingnefndum Alþingis sé aðeins sýndarleikur og því hafi hann ákveðið að hætta á mæta á nefndarfundi.
Þessu hefur Brynjar lýst opinberlega yfir en hann situr í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem hann hefur ekki mætt á fund í rúman mánuð. Ástæðan er sú að nefndarstarfið sé aðeins sjónarspil og pólitískur leikur að mati þingmannsins. Hins vegar virðist hafa verið annað hljóð í Brynjari þegar stjórnamálafræðinemandi spurði hann um gagnsemi þingnefnda. Þá vildi þingmaðurinn meina að án þingnefnda væri alveg eins hægt að leggja niður Alþingi.
Af þessu tilefni rifjar Ragnar upp í nýlegu tísti þegar hann skrifað ritgerð sína um þingnefndir í BA-námi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í henni spurði Ragnar ýmissa spurninga og ein þeirra var hvort að þingnefndir geri raunverulegt gagn. Brynjar fannst spurningin furðuleg og grillaði stjórnmálafræðinemann Ragnar í svari sínu. „Þessi spurning er enn óskiljanlegri. Ef þær gera ekkert gagn getum við alveg eins hætt að hafa löggjafarsamkundu,“ sagði Brynjar þá.
Það er greinilegt að Brynjar hefur skipt um skoðun síðan hann roast-aði mig, þegar ég var að skrifa ritgerð um þingnefndir í BA náminu. pic.twitter.com/0HjT0nw1wR
— Ragnar Auðun Árnason (@raggiau) November 24, 2020