Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Segir ríkisstjórnina ráðalausa: „Ofbeldi meðal barna og fullorðinna er að aukast á öllum vígstöðum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Á að bíta barn sem bítur? er yfirskrift greinar sem Eva Sjöfn Helgadóttir varaþingkona Pírata skrifar:

„Fréttaflutningur af alvarlegum ofbeldisbrotum á Íslandi hefur verið svo hávær að undanförnu að fólk er farið að spyrja hvort ofbeldisbrotum sé að fjölga. Svarið við þeirri spurningu er því miður einfalt: já. Þeim hefur fjölgað umtalsvert á síðustu níu árum, eða um 64%. Fólksfjölgun skýrir ekki þessa síhækkandi tíðni því hún var aðeins um 15% á sama tímabili.“

Hún nefnir að „í svari frá dómsmálaráðherra um ofbeldisbrot framin af börnum kemur í ljós að þeim hefur ekki síður fjölgað undanfarin níu ár. Árið 2012 var 71 barn grunað um alvarlegt ofbeldisbrot – en á síðasta ári var talan komin upp í 170. Þá hefur fjöldi brota einnig margfaldast á tímabilinu, sem þýðir að þau börn sem fremja ofbeldisbrot eru farin að gera það í auknum mæli: https://www.althingi.is/altext/152/s/0557.html

Eva Sjöfn spyr:

Eru rafbyssur svarið? Þessi þróun er vægast sagt ógnvænleg og kallar á skýr viðbrögð frá ríkisstjórninni, en þau virðast ekki ætla að bregðast við henni með langtímaúrræðum eða auknum forvörnum. Þau telja það hins vegar þjóðþrifamál, í skugga stigvaxandi ofbeldis, að auka vopnaburð lögreglu og leyfa þeim að ganga með rafbyssur. Þau ætla semsagt að bregðast við auknu ofbeldi með meira ofbeldi.“

Hún nefnir réttilega að „rafstuð getur leitt til andláts; það hljómar vægast sagt eins og undarleg lausn. Rafbyssur eru hættulegar og fólk hefur látist í kjölfar þess að fá rafstuð. Hegðun mótast mikið af herminámi og ef við viljum að unga fólkið okkar hætti að beita ofbeldi gefur auga leið að lausnin felst ekki í auknum heimildum löggæslu til að beita ofbeldi. Á sama hátt og við kennum ekki barni að hætta að bíta með því að bíta það.“

- Auglýsing -

Eva Sjöfn segir að „það þarf að hugsa dæmið upp á nýtt og skilgreina hvernig við ætlum að fyrirbyggja ofbeldi og tryggja öryggi fólks. Vissulega þarf einnig að tryggja öryggi starfsfólks lögreglu – en ég tel að hér sé verið að byrja á öfugum enda.

Í átakanlegum Kastljóssþætti fyrr í vikunni var rætt um andlegt ofbeldi sem hinsegin börn verða í auknum mæli fyrir frá jafningjum sínum. Ljóst er að ofbeldi meðal barna og fullorðinna er að aukast á öllum vígstöðum og ríkisstjórnin verður að átta sig á því að lausnin við ofbeldi er aldrei meira ofbeldi. Það þarf að líta þessa skelfilegu þróun mjög alvarlegum augum og leita skilvirkra leiða til að snúa henni við áður en fleiri börn finna sig knúin til að enda eigið líf vegna ofbeldis sem þau verða fyrir. Ríkistjórn þessa lands ber ábyrgð á því að bregðast við þessu, ekki seinna en í dag.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -