Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Stefnir sendiráði Indlands: „Ert jafn gagnslaus og innfæddir – Kominn með upp í kok af hvítu fólki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það er vefmiðillinn DV sem greinir frá manni sem hefur stefnt indverska sendiráðinu á Íslandi; staðsett við Túngötu í Reykjavík.

Ástæðurnar fyrir stefnunni eru vegna vangoldinna launa og rasískrar framkomu í sinn garð.

Ekki er ólíklegt að við rekstur málsins muni reyna á ákvæði um friðhelgi sendiráða; svokallaðan úrlendisrétt.

Indverska sendiráðið mun líklega freista þess að fá málinu vísað frá; mögulega á þeim forsendum að íslensk lög nái ekki yfir starfsemi erlendra sendiráða.

Kemur fram í grein DV, sem hefur stefnu málsins undir höndum, að lögmaður mannsins sé hins vegar fullviss að íslensk lög gildi í þessu tilviki. DV .

Maðurinn sem stefnir indverska sendiráðinu er Ungverji sem hefur búið um langa hríð á Íslandi; starfaði hann sem bílstjóri hjá indverska sendiráðinu frá 1. maí árið 2017 og þar til hann hætti störfum í byrjun þessa árs.

- Auglýsing -

Hann segir að á starfstímanum hafi hann orðið að þola vanvirðingu af hálfu vinnuveitenda sinna; þó sérstaklega af hendi þáverandi sendiherra Indlands á Íslandi.

Ungverski maðurinn þurfti meðal annars að þola rasísk ummæli sendiherrans í sinn garð og meðal þess sem sendiherrann á að hafa sagt er:

„Þú ert jafn gagnslaus og aðrir innfæddir starfsmenn, og ég er kominn með upp í kok af hvítu fólki (e. „You are as useless as the other persons of the local staff, and I am fed up with whities.“) og „klaufskur og heimskur eins og aðrir innfæddir“ („clumsy and idiotic like all of the locals“).

- Auglýsing -

Lýsingarnar er að finna í stefnunni, sem, eins og hefur komið fram, DV hefur undir höndum um framkomu sendiherrans við ungverska manninn:

„Þann 7. nóvember 2019, heimsótti sendiherrann Hard Rock Café ásamt eiginkonu sinni en þar varð hann ofurölvi. Hann snéri svo aftur heim án eiginkonu sinnar og skipaði stefnanda að yfirgefa svæðið. Síðar um kvöldið snérist sendiherranum hins vegar hugur og fyrirskipaði hann þá stefnanda að sækja eiginkonuna – sem stefnandi gerði. Þegar stefnandi hafði ekið sendiherrafrúnni heim var honum ekki þakkað fyrir unnin störf heldur var tekið á móti honum með svívirðingum fyrir að hafa „gleymt“ eiginkonu sendiherrans.

Í svívirðingunum fólust einnig mörg mjög niðrandi og rasísk ummæli um stefnanda. Sendiherrann skipaði stefnanda ítrekað að brjóta gegn umferðarlögum á meðan hann sinnti sinni vinnu og setti óeðlilegan þrýsting á stefnanda. Í ljósi samningssambands milli stefnanda og indverska sendiráðsins er ljóst að sendiherrann var í yfirburðarstöðu gagnvart stefnanda og valdaójafnvægið mikið. Þann 28. janúar 2020, var stefnandi beittur miklum þrýstingi af sendiherranum, en sá síðarnefndi krafðist þess að stefnandi tæki ólöglega fram úr öðrum bifreiðum í umferðinni og að hann keyrði yfir gatnamót á rauðu ljósi. Þar að auki varð stefnandi, sem og aðrir starfsmenn, fyrir niðrandi framkomu og svívirðingum á meðan undirbúningi fyrir heimsókn forseta Indlands, Ram Nath Kovind, stóð yfir. Þeir starfsmenn gætu sannreynt framangreint enda voru þeir mjög gagnrýnir á framferði sendiherrans.“

Stefnandinn krefur indverska sendiráðið um vangoldin laun, sem eru, að viðbættri hálfri milljón í lögmannskostnað, 3,7 milljónir króna.

Ennfremur segist maðurinn hafa fengið laun greidd undir taxta; hann hafi ekki fengið desemberuppbót né orlofsbót; þá telur Ungverjinn að hann hafi verið svikinn um yfirvinnugreiðslur; hann krefst miskabóta upp á 750 þúsund krónur fyrir vanvirðandi framkomu gagnvart sér, sem og rasisma.

„Stefnandi telur að í þeim svívirðingum og áreiti sem hann varð fyrir í starfi sínu fyrir sendiráðið hafi falist ólögmæt meingerð gegn honum og krefst þar af leiðandi miskabóta á þeim grundvelli,“ segir einnig í stefnunni.

Í áðurnefndri stefnu er bent á að hvergi í íslenskum lögum séu sendiráð að öllu leyti undanþegin lögsögu íslenskra dómstóla.

Síðar í stefnunni er bent á ákvæði Basel-samningsins – sem Ísland er aðili að – en í honum kemur fram að erlent ríki geti ekki borið fyrir sig úrlendisrétti í málum er varða ráðningarsamninga við starfsfólk, ef vinnan sem innt er af hendi, samkvæmt samningum, fer fram í móttökuríki.

DV segir líka fráþví að málið verði þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 31. maí næstkomandi og að búast megi við því að aðalmeðferð málsins verði í haust.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -