Laugardagur 27. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Stóru grjóti hent inn um glugga Írisar: „Hvað er í gangi… ARRRRRGGGG“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íris nokkur tjáði sig inn á facebook hópnum 108 RVK- Hverfagrúppa um tjóni sem hún varð fyrir í gær. Svo virðist sem einhver hafi hent stóru grjóti í gluggan heima hjá henni að Langagerðisbotnlanga.

Íris telur að þetta geti hafa gerst í gær á milli kl. 08-15. Dýrfinna, sem einnig býr í hverfinu trúir því ekki að þetta hafi getað gerst í hverfinu, en nágrannar eru farnir að vera á verði og segir Þórdís nokkur: „Je minn, þið eruð við hliðina á okkur, skal ath hvort foreldrar mínir urðu varir við eitthvað í dag.“

Í morgun gerðist það svo  að annar íbúi hverfisins kom að bílnum sínum í tjóni. Þá var búið að brjóta farþegarúðuna á bílnum og húddið opið. Nanna vonar að fleiri hafi ekki lent í þessu og segist vera hrædd við að hafa bílana utandyra yfir nótt í þessu ástandi.

Kristján tekur undir það og varar fólk við og segir: „Þjófavörn fer ekki í gang á sumum bílum nema að hurð sé opnuð, engin högg né brot skynjun. Þetta vita þessir vitleysingar og brjóta bara hliðarúðu og draga allt út um brotnu rúðuna.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -