Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir var bólusettur fyrr í dag undir dynjandi klappi viðstaddra í Laugardalshöllinni. Hann fékk fyrri sprautuna af bólusefni AstraZeneca en þá seinni fær hann eftir þrjá mánuði.
RÚV greinir frá því að Þórólfur hafi beðið í röð, líkt og aðrir, í Laugardalshöllinni en þegar hann fékk sér sæti hafi viðstaddir klappað dátt.
Þórólfur hefur fram að þessu afþakkað bólusetningu sem heilbrigðistarfsmaður en var í dag boðaður vegna aldurs.
Hann bar sig vel og sagði við RÚV: „Mér líður bara vel“. Líkt og fyrr segir þá var Þórólfur bólusettur með Astrazeneca bóluefninu sem sumir hafa afþakkað.