Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Var bannað að bjóða sig fram á síðustu stundu: ,,Skrýtið hvernig Samfylkingin stóð að þessu”

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, segir fólk almennt ekki vita mikið um fangelsismál eða þá reynslu að sitja í fangelsi. Guðmundur er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar.

Þar segir hann skrýtið að líta um öxl og hugsa til þess að hann hafi verið í fangelsi stóran hluta ævi sinnar.

,,Það ætlar sér enginn að enda inni í fangelsi. Ég man að mánuði áður en ég endaði sjálfur í fangelsi keyrði ég framhjá Litla Hrauni og horfði á bygginguna og hugsaði með mér hvernig það væri eiginlega að enda þarna inni. Ég eins og flestir vissi ekkert mikið um hvað væri í gangi á bakvið þessa veggi. Það er í raun ennþá þannig að fólk almennt veit mjög lítið um lífið í fangelsum þó að það hafi einhverjar hugmyndir úr bíómyndum.

Ég er ekki þessi týpíski fangi og sagan mín bar það ekki með sér að ég myndi enda í fangelsum. Einhvern vegin byrjaði ég að feta þessa braut og eftir að ég fór sjálfur í meiri neyslu lá það einhvern vegin beinast við að fara í innflutning fíkniefna til að fjármagna neysluna. Ég flæktist í slæman félagsskap og svo leiddi eitt af öðru, en þegar ég horfi til baka sé ég ekki sjálfan mig sem hefðbundinn fanga.” Segir Guðmundur, sem segist í grunninn hafa verið frekar viðkvæmur ungur maður og það hafi verið honum áfall að vakna upp við það að vera kominn í fangelsi með þungan dóm á bakinu.

,,Ég varð ofboðslega veikur þegar ég fór fyrst í fangelsi. Ég var settur í einangrun og það var engin niðurtröppun eða neitt verið að fylgjast almennilega með manni. Svo er ég líka samkynhneigður og óttaðist það út frá staðalmyndum sem maður hafði, en sá ótti reyndist síðan óþarfur.” Guðmundur Ingi segir að þó að margt hafi verið gert ágætlega á Íslandi skorti mikið upp á í fangelsismálum í heild. Aðallega sé allt of lítið gert til að vinna með föngum til að skila þeim betri út í samfélagið eftir fyrsta dóm:

,,Flestir sem enda í fangelsum hafa orðið fyrir áföllum og svo er stór hluti fanga með alls kyns greiningar og raskanir. Sumir fæðast inn í þannig aðstæður að það er nánast borðleggjandi að viðkomandi muni enda inni í fangelsi. Það er hræðilegt að sjá sögur sumra sem enda í fangelsum og við sem samfélag verðum að bæta verulega úr því að bæta endurhæfingu og veita viðeigandi meðferðir inni í fangelsunum,” segir Guðmundur og heldur áfram:

- Auglýsing -

,,Fangelsin sem slík eru ekki endilega slæm á Íslandi og það er eðlilegt að slæmir hlutir geti gerst í fangelsum, þó að verið sé að vinna hlutina vel. Þarna safnast saman fólk sem er á slæmum stað í lífinu sem fær litla aðstoð. Það getur auðvitað endað illa. En stefnan í heild á Íslandi er langt á eftir því sem gerist í nágrannalöndunum. Aðbúnaðurinn skiptir auðvitað máli, en það hvernig er unnið með fólki sem kemur inn í fangelsum er miklu mikilvægara. Fólk fer í fangelsi af því að það er eitthvað að og ef það er ekki unnið með það, eru yfirgnæfandi líkur á að þú fremjir annað brot. Það tapa allir á því. Það getur verið erfitt að koma í veg fyrir að einstaklingur brjóti af sér í fyrsta skipti, en við sem samfélag getum komið í veg fyrir að viðkomandi brjóti af sér í annað, þriðja eða fjórða skipti. Þannig erum við að koma í veg fyrir að það verði til ný fórnarlömd, minnka kostnað, auk þess sem það er einfaldlega mannúðlegt.

Við erum langt langt á eftir nágrannalöndum okkar þegar kemur að stefnunni í heild sinni. Sú endurhæfing og vinna sem þar á sér stað hefur gefið mjög góða raun.”

Nýleg skýrsla Amnesty International sýnir að á Íslandi er miklu algengara að grunaðir einstaklingar séu settir í einangrun en í öðrum Evrópulöndum. Guðmundur segir löngu tímabært að setja þrýsting á íslensk stjórnvöld til að breyta þessu.

- Auglýsing -

,,Við beitum einangrunum mun meira en löndin í kringum okkur og lögreglan virðist hafa frítt spil. Það er sérstakt að dómstólar virðast samþykkja nánast allar beiðnir um einangranir, hleranir og fleira, bara eftir pöntunum lögreglu. Við erum lengi búin að vita að þetta er öðruvísi á Íslandi en í löndunum í kringum okkur, en það gerist lítið. Það skemmir fólk að sitja lengi í einangrun og getur valdið varanlegum skaða sem ekki er hægt að taka til baka.“

Guðmundi var vikið úr prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir Borgarstjórnarkosningar á síðustu stundu, eftir að búið var að samþykkja að hann mætti bjóða sig fram. Hann segir undarlegt hvernig að því var staðið:

,,Þetta var kvöldið áður en prófkjörið fór fram og mér fannst frekar illa að þessu staðið og hefði viljað að flokkurinn hefði staðið betur með mér. Það var búið að samþykkja að ég mætti bjóða mig fram, en svo voru einhver öfl sem urðu til þess að mér var kippt út á síðasta degi. Þetta er flokkur mannréttinda og jafnaðar og auðvitað finnst mér að það hefði átt að láta reyna á þetta, en því var borið við að það væri einhver vafi á að ég mætti bjóða mig fram. En ég er ekki maður sem er fúll mjög lengi og ákvað fljótt að velta mér ekki of lengi upp úr þessu. En ég mun halda áfram að berjast fyrir því sem ég hefði barist fyrir í stjórnmálunum.”

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -