Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Vinnumarkaðurinn „martröð“ fyrir margt aðflutt fólk

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Efling – stéttarfélag birtir yfirlýsingu á vef sínum vegna brunans á Bræðraborgarstíg 1 þar sem aðstandendum þeirra sem létu lífið í brunanum eru sendar samúðarkveðjur og þess er krafist að yfirvöld efni loforð sín. Formaður Eflingar segir vinnumarkaðinn vera martröð fyrir margt aðflutt fólk.

Í yfirlýsingu Eflingar segir að félagið hafi fengið staðfest að tvö af þeim þremur sem létust í brunanum voru félagsmenn í Eflingu.

„Verkafólk af erlendum uppruna sem komu hingað til lands til að vinna verkamannastörf. Hingað komin lentu þau í gildru einstaklings sem leigði þeim hættulegt húsnæði í óboðlegu umhverfi,“ segir í yfirlýsingunni.

Lögleysa og vanræksla

Í yfirlýsingunni segir að niðurstöðu rannsóknar lögreglu sé beðið en að Efling setji brunann í samhengi við þá meðferð sem aðflutt vinnuafl verður fyrir á Íslandi. „Enginn skortur hefur verið á ábendingum um lögleysu og vanrækslu þegar kemur að stöðu erlends verkafólks á Íslandi. Á það bæði við réttindi á vinnumarkaði og húsnæðisaðbúnað.“ Þá er vísað í umfjöllun Stundarinnar sem var birt fyrir fimm árum síðan.

Loforð um útbætur

- Auglýsing -

Í yfirlýsingunni er fjallað um athugasemdir og körfur sem Efling setti fram í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins veturinn 2018-2019.

„Efling krefst þess að borin sé eðlileg virðing fyrir lífi, heilsu og öryggi alls verkafólks…“

„Lendingin varð sú að ríkisstjórnin setti fram mörg loforð um úrbætur á vinnumarkaðslöggjöfinni og hert viðurlög í skjalinu „Stuðningur stjórnvalda við lífskjarasamninga“ (sjá liði 22, 25 og 26). Efndir á þessum loforðum hafa enn ekki sést og samkvæmt upplýsingum Eflingar frá ASÍ standa Samtök atvinnulífsins einörð gegn þeim,“ segir m.a. í yfirlýsingunni og er þess þá krafist að félagsmálaráðherra og ríkisstjórnin efni  loforð um hertar aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði.

„Efling krefst þess að allar stofnanir hins opinbera sem fara með eftirlit varðandi öryggi og heilsu borgaranna sýni tilætlaða árvekni og taki eðlilegt frumkvæði að íhlutun þegar við á, en sýni ekki af sér vanrækslu og sinnuleysi þegar láglaunafólk eða fólk af erlendum uppruna á í hlut. Efling krefst þess að borin sé eðlileg virðing fyrir lífi, heilsu og öryggi alls verkafólks og að bundinn verði endir á kerfisbundna mismunun gegn verkafólki af erlendum uppruna.“

- Auglýsing -

Martröð fyrir aðflutt fólk

Í yfirlýsinguni er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar að vinnumarkaðurinn sé „ekkert nema martröð“ fyrir ákveðinn hóp.

„Ég er harmi lostin. Í starfi mínu síðustu tvö ár hef ég á hverjum einasta degi heyrt um launaþjófnað, arðrán, misbeitingu, rugl og ógeð. „Besti vinnumarkaður í heimi“ er ekkert nema martröð fyrir mörg af okkar aðfluttu félögum. Ég krefst þess að við hættum að þola skeytingarleysi þeirra sem völdin hafa yfir lífsskilyrðum félaga okkar sem þurfa mest af öllum á því að gengið verði í að bæta þeirra kjör og aðstæður. Hinn hræðilegi harmleikur verður að hafa raunverulegar afleiðingar. Ég hef engin orð til að lýsa Íslandi ef að það gerist ekki,“ er haft eftir Sólveigu.

Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hérna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -