Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Jólin eru í hátíðarblaði Húsa og híbýla – Glys og glamúr um hátíðarnar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hátíðarblað Húsa og híbýla er komið út. Blaðið er stútfullt af fallegum innlitum, hugmyndum, innblæstri og viðtölum við fagurkera. Þetta er blaðið sem kemur ykkur í hátíðarskap.

Við förum víða í nýja blaðinu, til dæmis heimsækjum við hlýlegt og smart heimili á Dalvík og skoðum töff nýbyggingu í Reykjanesbæ þar sem hver hlutur hefur verið valinn af kostgæfni.

Heima hjá Önnu Kristínu Guðmundsdóttur og Einari Dan Jepsen á Dalvík. Mynd / Auðunn Níelsson

Við hittum á Ingunni Emblu Axelsdóttur og fengum að forvitnast um hvernig hún skreytir alla jafna fyrir jólin.

„Heimilið mitt er í fullum skrúða allan ársins hring. En þegar ég legg í aukalegar hátíðarskreytingar hef ég einstaklega gaman að litlum jólatrjám sem geta síðar flokkast undir pottaplöntu eftir hátíðarnar,“ segir Ingunn meðal annars.

Ingunn Embla. Mynd / Hákon Davíð

Við kíkjum þá í heimsókn til Hörpu Grímsdóttur sem býr í glæsilegu húsi í Garðabæ. Það var afar hátíðlegt að litast um hjá Hörpu þegar okkur bar að garði. Spurð út í hvernig hún skreyti yfirleitt fyrir hátíðirnar segist hún vera fremur minimalísk þegar kemur að skreytingum. „Ég skreyti ekkert sérstaklega mikið fyrir jólin en mér finnst alltaf skemmtilegt að nota lifandi greinar, hýasintur og amaryllis í skreytingar,“

Heima hjá Hörpu Grímsdóttur. Mynd / Hallur Karlsson
Fallegt heimili í Reykjanesbæ þar sem látlausar jólaskreytingar njóta sín vel í kringum hátíðirnar.  Mynd / Hákon Davíð

Sunna Dögg, vöruhönnuður og listakona, hannaði póstkortið fyrir okkur en hún hefur komið víða við á lista- og hönnunarferli sínum. Hún lýsir sér sem sæblárri KitchenAid-hrærivél á hæsta snúningi; uppfull af hugmyndum, ósigrum og smásigrum.

- Auglýsing -
Við kíkjum í heimsókn á vinnustofu Sunnu Daggar. Mynd / Hallur Karlsson

Við heimsækjum Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur hönnuð sem býr í fallegu Sigvaldahúsi í Hvassaleitinu ásamt manni sínum Jóni Trausta Kárasyni og þremur börnum. Fjölskyldan hefur búið í húsinu í eitt og hálft ár og unnið hörðum höndum að því að gera húsið að sínu.

Heima hjá Ingibjörgu Hönnu. Mynd / Hallur Karlsson

Í blaðinu er svo einnig að finna innlit á heimili Karenar Óskar innanhússráðgjafa og Sóleyjar sem starfar sem viðskiptastjóri hjá Gallup. Karen lýsir stíl þeirra sem klassískum undir skandinavískum áhrifum. „Ég nota mestmegnis jarðliti eins og grænan, brúnan, rauðbrúnan og gráan í bland við sterkari liti í fylgihlutum og leyfi grunninum að vera frekar hlutlausum og notast þá mest við náttúruleg og endingargóð efni.“

Heimili Karenar og Sóleyjar er stílhreint og smart. Mynd / Hallur Karlsson
Hátíðarblaðið er stútfullt af heillandi hugmyndum.

Þetta og svo miklu meira í fallega hátíðarblaðinu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Íslenskt fagtímarit um heimili og hönnun

Tryggðu þér árs áskrift og fáðu 13 tölublöð á 1.538 kr. stykkið eða kauptu stakt blað á 2.430 kr.

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -