Nýtt tölublað Húsa og híbýla er komið í verslanir. Í blaðinu er að finna fjölbreytt innlit, góðar hugmyndir fyrir stofur og borðstofur ásamt ýmsum fróðleik. Forsíðumyndin er frá heimili Evu Daggar Rúnarsdóttur, annars eiganda Rvk Ritual, en hún segir að gott andrúmsloft á heimilinu skipti sköpum og hún sjái heimilið sem nokkurs konar vistkerfi.
Borgarfulltrúinn Kristín Soffía Jónsdóttir og Gestur Pálsson verkfræðingur eiga fallegt heimili á Laugarnesi þar sem þau hafa farið í ýmsar framkvæmdir og deila með lesendum reynslu sinni á skemmtilegan hátt.
Einar Hjaltason og Kristjana Þura Bergþórsdóttir sem eiga Von Mathús í Hafnarfirði opna heimili sitt fyrir lesesendum og segja frá því hvernig þeim hefur tekist til að sameina heimilislífið og sjálfstæðan rekstur.
Við kíktum í heimsókn til Hörpu Pétursdóttur og Brands Haukssonar en þau búa í Háaleiti ásamt tveimur börnum þeirra. Heimilið er framandi, litríkt og listrænt.
M/Studio sýnir verkefni sem fyrirtækið hefur unnið að undanfarin misseri en stofan samanstendur af þverfaglegu hönnunarteymi á sviði hönnunar, arkitektúrs og nýsköpunar.
Sjáland er framsækinn og fjölbreyttur veitingastaður í Garðabæ með dýrðlegt útsýni yfir sjóinn. Við kíktum í heimsókn þangað rétt fyrir fyrstu opnun.
Þetta og margt fleira er að finna í þessu fjölbreytta blaði.