Vinirnir Páll Óskar Hjálmtýsson og Valgeir Gunnlaugsson opnuðu í fyrradag nýjan pítsastað.
Páll Óskar birti skemmtilegt myndskeið á Instagram þar sem hann tilkynnir að hann og Valgeri Gunnlaugsson eða Valli flatbaka eins og hann er gjarnan kallaður, hafi verið að opna nýjan pítsastað, Pizza 107, sem staðsettur er á Hagamel 67, þar sem bókabúðin Úlfarsfell var áður til húsa. Valli flatbaka stofnaði pítsastaðinn Íslenska Flatbakan fyrir átta árum en seldi hann í mars.
„Hvað heldurðu að ég sé að gera núna?“ sagði Páll Óskar í upphafi myndskeiðsins á Instagram. „Opna pítsastað á besta stað í bænum!“ Palli ólst upp í Vesturbænum og segist í myndbandinu ekki vera sama hvað kemur á hornið á Hagamel 67.
Myndskeiðið má sjá hér að neðan:
View this post on Instagram