Stefán Máni Sigurþórsson, sem er 53 ára rithöfundur og þjóðinni þekktur fyrir glæpasögur sínar, kastaði nýverið fram spurningu á Twitter þar sem hann virðist hafa fundið samnefnara fyrir allar fertugar konur, sem hann kallar Backstreet Boys-áhrifin.
„Backstreet Boys áhrifin. Eru fleiri að verða varir/vör við að ca fertugar konur séu í tannhvíttun, ljósum og hættar að borða? Fyrir utan að vera dálítið annars hugar og hyper.“
Backstreet Boys mun halda tónleika þann 28. apríl næstkomandi í Laugardalshöll, sem liður í tónleikaferðalagi vegna þrjátíu ára afmæli sveitarinnar í apríl næstkomandi.
Ekki er vitað hvort vangaveltur Stefáns Mána og alhæfingar séu sprottnar upp vegna persónusköpunar í nýrri skáldsögu eða persónulegrar reynslu. En virðist honum mjög í mun að fá svar við uppljómun sinni. Ef marka má viðbrögðin sem færslan hefur fengið viðist naglinn ekki hafa hitt höfuð þar sem fáir hafa tekið undir.
Backstreet Boys áhrifin. Eru fleiri að verða varir/vör við að ca fertugar konur séu í tannhvíttun, ljósum og hættar að borða? Fyrir utan að vera dálítið annars hugar og hyper.
— Stefán Máni (@Stefan_Mani_) April 18, 2023