Hún er frekar sorgleg staðreyndin sem Auður Magndís Auðardóttir þarf að glíma við í lífi sínu, en er því miður þó ekki neitt einsdæmi – þótt vissulega dæmunum fækki með árunum vegna fræðslu og meira umburðarlyndi fólks svona almennt.
En betur má ef duga skal.
Það er Eiríkur Jónsson sem greindi fyrst frá:
Auður segir að þetta eru „10. jólin sem ég heyri ekki í honum karli föður mínum vegna þess að hann lítur á hinsegin fólk sem glæpamenn.“
Og hún bætir við að „hann vill ekki umgangast glæpamenn. Jamm. Þetta er til. Á Íslandi,” segir Auður sem er kynjafræðingur að mennt og er fyrrum framkvæmdastýra Samtakanna 78.